Skírnir - 01.04.2013, Page 136
134
RÓSA MAGNÚSDÓTTIR
SKÍRNIR
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sem skrifað hefur tvær ævi-
sögur út frá kynjafræðilegri nálgun, dregur einnig fram þessa skörun
á einkalífi og opinberu lífi sem mikilvægan flöt á kynjafræðilegri
ævisöguritun, en hún ritaði svo:
Kynjafræðileg ævisöguritun felur í sér að kyn þess sem ritað er um verður
miðlægt. Samtími persónunnar er þá meðal annars skoðaður út frá stöðu
kynjanna og hugmyndum um hlutverk þeirra. Saga einnar konu fær við
það tilvísun í sögu fleiri kvenna því hinn kynbundni veruleiki er konum
sameiginlegur. Lögð er áhersla á að athuga fyrirmyndir konunnar sem ritað
er um og hvernig þær móta ævi hennar. [_] I kynjafræðilegri ævisöguritun
er einnig athugað hvernig einkalíf og opinbert líf persónunnar skarast og
hvaða áhrif kyn hennar hefur á tengslin á milli þessara meginsviða mann-
legs lífs.14
Séu heimildir til staðar eins og söfn Kristins og Þóru er oft og tíðum
hægt að greina utanaðkomandi áhrifavalda, t.d. í bókmenntum, tón-
list, myndlist og stjórnmálum, og í bréfaskriftum og dagbókum er
hægt að sjá skoðanir myndast, þróast og breytast. Eins og komið
hefur fram höfðu Þóra og Kristinn skýrar skoðanir á stöðu kynjanna
og unnu að því hörðum höndum að bæta hag kvenna. Skilgreining
Sigríðar Dúnu, sem byggð er á skilgreiningum erlendra fræðimanna,
á því vel við — og ég tel að hjónasagan sé jafnvel enn betur til þess
fallin að skoða þessi óræðu skil einkalífs og opinbers lífs en saga
einnar konu. Eins og Erla Hulda Halldórsdóttir hefur bent á hafa
ýmsir orðið til að gagnrýna það sjónarhorn að þá sjaldan ævisaga
konu er rituð, verði hún um leið fulltrúi kvenna almennt í stað þess
að vera verðugt viðfangsefni ævisögu eingöngu út frá sjálfri sér.15
Það er því ekki nóg að önnur aðalpersónan sé kona til að ævisaga
verði kynjasaga, fræðimaðurinn þarf líka að vera sér meðvitaður um
að kynjafræðileg nálgun felur í sér að greining á valdatengslum og
orðræðu markast af hugsun um hlutverk og stöðu kynjanna í stærra
samhengi.
14 Sigríður Dúna Kristmundsdóttir 2001: 339. Erla Hulda Halldórsdóttir (2013)
gerir einnig góða grein fyrir þessari nálgun á ævisögur kvenna í grein sinni um
ævi Sigríðar Pálsdóttur.
15 Erla Hulda Halldórsdóttir (2011: 30,2013). Sjá einnig greinar Sigrúnar Pálsdóttur
(2001,2012).