Skírnir - 01.04.2013, Page 181
SKÍRNIR
BARNALEIKUR
179
hefur það aldrei gengið að lýsa líkama nokkurs manns öðruvísi en
með tilstilli hugans og hjálp orða og myndhverfinga sem leika stórt
hlutverk í því hvernig við reynum að lýsa líkamlegri tilvist okkar í
heiminum. Að líkja líkamanum við úrverk er myndhverfing sem
skýrist af mikilli hrifningu manna á nýrri tækni og vísindum á 17.
öld. I stað þess að skoða sig sem eina af birtingarmyndum sköpun-
arverks guðs og hliðstæðan annarri náttúru fer maðurinn að skoða
umhverfið í sinni mynd og varpa sjálfsmynd sinni yfir á hvað sem
er. Þetta er einkenni nútímamannsins sem notar myndhverfingar
eins og að vera „upptrekktur", „á yfirsnúningi", í „mikilli spennu"
eða „orkulaus“, að vera„í stuði“, „í losti“, „kveikja á einhverju" eða
„kveikja ekki á því“, „vera í sambandi“ eða „ekki í sambandi“ eða
„í hægagangi“, „útbrunninn“, „ganga of hratt“ eða verða að „hlaða
batteríin" — svo að nokkuð sé nefnt (Scheper-Hughes og Lock
1987: 22-23).
Martin Montag í Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur er mjög sér-
hæfður og afburðagóður læknir og á myndhverfðan hátt sér hann
sjálfan sig í hlutverki hershöfðingja eða bardagamanns í persónu-
legu útrýmingarstríði við krabbameinsæxlin:
Geislalækningar eru flottasta aðferðin gegn krabbameini. Sú sem skaðar
sjúklinginn minnst. Þess vegna lagði ég þær fyrir mig. Ég fagna hverju til-
felli þar sem geislarnir einir eiga leikinn, og sjúklingur er læknaður og lítið
skaddaður eftir meðferð. Ég á aldrei eftir að venjast hrossalækningum
glundrara og bartskera, og ég vonast til þess að lifa nógu lengi til að sjá
stöðugildum í þeim starfsstéttum fækka verulega, meðan mér og minni
geislabyssu fleygir stöðugt fram og möguleikunum til að hnitmiða geisl-
ann hárnákvæmlega þangað sem hann á að fara til að gera út af við morð-
ingjann í líkamanum og þyrma líkamanum sjálfum. (44)
Eins og sjá má er tungutakið eilítið barnslegt („flottasta aðferðin“)
og myndhverfingar læknisins minna á dreng í tölvuleik þar sem bar-
ist er með geislabyssum við hin illu öfl.
Martin er ekki hógvær maður enda telur hann sig vera í fram-
varðarsveit heilbrigðisstéttahersins og þar með hluta af eins konar
hátæknilegri yfirstétt sem þýðir meðal annars að hann þarf aldrei
að snerta sjúklinginn eða „slabbið" sem inni í honum er: