Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Side 31

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Side 31
Í s l e n s k i b æ r i n n TMM 2014 · 1 31 xi Sérhver bær er ólíkur þeim næsta, þó báðir séu óumdeilanlega hlutar af sama byggingarstílnum. Hvert hús innan húsaþyrpingarinnar er með sínu sköpulagi, ólíkt því næsta í hlutföllum og stærðum en heildin samt í innri sátt og fullkomnum samhljómi. Þetta er grundvallareinkenni íslenska torfbæjarins og lykillinn að fagurfræði hans. Hver byggði með sínu nefi í samræmi við viðtekna hefð. Fyrir hundrað árum voru nær 6000 bæir á landinu, dreifðir um öll lands- horn: hverjum þeirra tilheyrðu 10 til 20 hús auk eldri húsa og útihúsa; samanlagt gætu því um 80–100 þúsund torfbyggingar hafa fyrirfundist á síðasta skeiðinu.17 Svo fyrirferðarmikill og ríkur var þessi arfur að nálega hefur verið til staðar eitt torfhús, á misjöfnum aldri, á hvern landsmann. Miklar heimildir eru til um þetta síðasta og merkasta tímabil íslenska bæjar- ins og svanasöngur þess er enn í minni elstu manna. xii Ljósmyndatæknin spannar allan blómatímann, fyrst í meðförum atvinnu- manna og útlendinga og síðar í höndum almennings með fjöldaframleiddar kassavélar. Það er ekki síst í fjölskyldualbúmum en einnig í teikningum, myndum og frásögnum fólksins sem bjó til bæina og bjó í þeim, að þessi arfur hefur varðveist. Nú fer hver að verða síðastur að skrá og safna saman því sem enn er eftir af lifandi þekkingu um arfinn. Hana er eingöngu að finna, með fáum undantekningum, hjá elstu kynslóð núlifandi Íslendinga. Hér er um að ræða mikilvægt verkefni sem ekki má lengur bíða, tilvalið fyrir unga arkitekta, þjóðfræðinga, safnafræðinga og myndlistarmenn. Til þess að geta spurt réttu spurninganna, skilið svörin og fylgt þeim eftir er nauðsynlegt að hafa staðgóðan skilning á hugmyndafræði torfbæjar- arfsins. Afar mikilvægt er að gera sér grein fyrir mismunandi aðferðafræði í frásagnartækni þegar fólk lýsir bæ frá æskuárum. Sumir fara hús úr húsi og draga upp skilmerkilega mynd af húsatorfunni allri og jafnvel útihúsunum með, aðrir byrja á atburði eða hlut og spinna út frá honum spíralkenndan vef. Ef rétt er á haldið geta báðar aðferðir gefið jafn góða mynd af staðháttum og húsaskipan. Til þess að geta unnið úr og gætt munnlegar upplýsingar og tilfallandi myndefni lífi er nauðsynlegt að hafa glöggt myndskyn og teiknikunnáttu. Á skjalasöfum, byggðasöfnum, Þjóðminjasafni Íslands og Ljósmyndasafni Reykjavíkur er mikið magn mynda í álögum og bíða úrvinnslu og endurlífg- unar. Það er mikilvægt og nauðsynlegt skráningarverkefni að safna saman afritum af þessum myndum, stærri og smærri, í gagnagrunn. Mikilvægast er þó að túlka þær af alúð, þekkingu og innsæi, setja fram á lifandi hátt og sýna þar með fjölbreytnina, umfangið, dýptina og fegurðina í blómstrandi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.