Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 37
S e n d u r m e ð s v i p u TMM 2014 · 1 37 Það var eyðilegt á heiðinni og hálfgerður beygur í mér. Hver vissi nema huldufólk, útilegumenn eða jafnvel tröll yrðu á vegi mínum? Mér létti í skapi þegar ég sá mann á gangi spölkorn fram undan. Ég sló í klárinn. Forynjur gleymdust fyrst ég var svo heppinn að hitta mannlega veru. Þegar ég nálgaðist manninn, sem var að æja við læk, sá ég að hann var klæddur gauðrifnum görmum og bar poka á bognu baki. Þetta hlaut að vera eitthvert förumannstetur, en ekki kannaðist ég við baksvipinn. Þó var ekki útilokað að ég bæri kennsl á hann þegar ég sæi framan í hann. – Sæll veri hann! kallaði ég. Hann leit við og tók glaðlega undir kveðju mína, en það veit hamingjan að hvorki fyrr né síðar á minni löngu ævi hefur mér orðið jafn hverft við. Hvílíkt andlit! Vinstri vanginn var skjallhvítur, en sá hægri himinblár! Ég varð skelfingu lostinn og sló rösklega í klárinn. En Rauður gamli hlýddi ekki skipun minni, hann virtist hreint ekki hafa veitt því athygli hvílík ófreskja hafði orðið á vegi okkar. – Finnst þér ég skrítinn? sagði karlinn og hló, svo að skein í brennda tann- stubbana. – Blessaður vertu, þú þarft ekki að vera hræddur við hann mig, ég geri ekki flugu mein. Hana, viltu ekki þetta í munninn? Hann rétti mér kandísmola og hrognaköku sem hann tíndi upp úr poka sínum. Ég bar hvort tveggja upp að nefi mínu, en fann enga annarlega lykt. Þessi óvænti glaðningur dró talsvert úr ótta mínum og tortryggni. Þó hafði ég enga lyst á hrognakökunni, stakk henni bara í vasann. En kandísmoli hafði oft reynst mér allra meina bót og líka í þetta sinn. Ég fékk kjark til að spyrja: – Hvers vegna ertu svona í framan? – Þú spyrð hvers vegna. Hvers vegna eru ekki allir eins? Hann hristist allur af hlátri. – Engir tveir eins, engum til meins. Mig hryllti við þessum tryllingslegu gleðilátum. Hvað gat komið honum til að láta spurningu minni ósvarað? Hann er meira en lítið dularfullur. Ég þykist næstum viss um að hann sé göldróttur. Bjálfinn sem ég var að kyngja kandísmolanum, ég svitna við tilhugsunina um að hann sé eitraður. Ég tek hrognakökuna upp úr vasanum og þeyti henni niður í moldarflag. – Dálagleg meðferð á mat, segir hann hastur. – Þú ættir skilið að svelta! Hann hvessir á mig augun, grá, blóðhlaupin og þrútin. Þau stinga undarlega í stúf við andlitið. Óttasleginn hef ég svipugarminn minn á loft til að knýja áfram reiðskjótann minn lata, sem hafði drukkið nægju sína og fengið sér tuggu. En karlinn hafði gripið traustataki í beislið svo að ég fékk hann ekki hrært. Frávita af hræðslu og reiði lamdi ég klárinn og barði fótastokkinn. Rauður rykkti til hausnum en tókst ekki að losa sig úr heljar- greipum karlsins. – Svona, svona, veriði rólegir, látiði ekki svona, segir hann blíðurómi. Hann klappar Rauð á snoppuna og stingur upp í hann brauðmola. Mér til mikils angurs mat skepnan meir blíðuhót flakkarans en mín húsbóndalegu svipuhögg og hott hott.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.