Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 64
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
64 TMM 2014 · 1
endursagt og fært í ný form sem hæfa hverjum tíma. Þetta má auðveldlega
yfirfæra á goðsagnir (þó vissulega séu trúarbrögð misviðkvæm fyrir endur-
sögnum).15
Saga Þórs sýnir þetta vel, en myndasögurnar og svo kvikmyndirnar eru
gott dæmi um endursagnir sem má vel sjá sem framhald af margháttuðum
tilfærslum; frá sundurlausum munnlegum sögnum yfir í samfellda frásögn
Snorra-Eddu, sem síðan er brotin niður aftur í einskonar epíska endaleysu
ótal dreifðra en lauslega samtengdra sagna í myndasögunum. Kvik mynd-
irnar hnýta þessi fræði saman í þéttari og styttri útgáfur. Goðsagnirnar hafa
því ferðast frá munnlegri geymd með sjónrænu ívafi (goðalíkönin sjálf sem
á sínum tíma bjuggu yfir miklu kynngimagni) yfir í ritaðar heimildir og
þaðan aftur yfir á svið hins sjónræna með myndasögum og kvikmyndum
– og hér er ekki úr vegi að nefna að kvikmyndinni hefur verið líkt við
trúarupplifun okkar tíma.
Á undanförnum árum hefur áhugi á endurvinnslu þjóðsagna og goðsagna
í bókmenntum aukist mjög og bæði bókmenntafræðingar og þjóðfræðingar
fjallað um hvernig þjóðsagan mætir bókmenntum.16 Þessi áhugi kemur ekki
til af engu, en á sjöunda og áttunda áratugnum byrja að koma fram verk sem
vinna á virkan hátt með sagnaarf, þjóðsögur og goðsögur.17 Það er einmitt á
sama tíma sem Thor verður að ofurhetju í bandarískum myndasögum.
Kevin Paul Smith setur fram kenningu um átta mismunandi tegundir af
bókmenntalegri úrvinnslu á ævintýrum (og ég yfirfæri á goðsögur):
1. Yfirlýst: Greinileg tilvísun í titli
2. undirtexti: Að gefa í skyn tilvísun í titli
3. Innlimun: Greinileg tilvísun til í texta
4. Óbein tilvísun: Að gefa í skyn tilvísun í texta
5. Endursköpun: Gömul saga færð í nýtt form
6. Tilbúningur: Ný saga búin til
7. Sjálfssöguleg: umræða um þjóðsögur
8. Byggingarleg: Þjóðsögulegt svið eða umgjörð18
Kvikmyndirnar um Thor falla greinilega í flokk 1, 3, 5 og 8, en einnig má færa
rök fyrir því að liður 6 eigi við, því auk þess að færa gamla sögu í nýtt form er
í raun búin til ný saga á gömlum grunni – ofurhetju- og hasarsaga. Liður 7 er
einnig til staðar, en það er heilmikið fjallað um þennan goðsagnaheim, aðal-
lega þó í Thor-myndunum, minna í Avengers-myndinni.19 Það er því ljóst
að kvikmyndaútgáfurnar falla afar vel að líkani Smiths um ævintýri og eins
og önnur svona módel birtir upptalningin greinilega hvernig úrvinnslan fer
fram, allt frá beinum tilvísunum til sviðsmyndar, en með nokkurri áherslu á
endurvinnslu. Jafnframt sýnir líkanið að Thor-myndirnar falla í flokka yfir-
lýstrar endursköpunar, hér er ekki talað undir rós; myndirnar fjalla um Thor
og fjölskyldu hans í Ásgarði og eru nýjar sögur um það lið allt.