Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Side 72

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Side 72
72 TMM 2014 · 1 Augusto Monterroso Mister Taylor Kristín Guðrún Jónsdóttir þýddi úr spænsku – Nei, ekki jafn skrítin, en hún hefur líklega meira fordæmisgildi, sagan af Mr. Percy Taylor, hausafangara í Amasónskóginum, sagði hinn. Það er vitað að hann fór frá Boston í Massachusetts árið 1937. Þar hafði hann fágað anda sinn af slíkri natni að hann átti hvorki í sig né á. Árið 1944 birtist hann í fyrsta skipti í Rómönsku Ameríku, nánar tiltekið á Amasón- svæðinu, og bjó meðal frumbyggja af ættflokki sem við þurfum ekki að muna nafnið á. Baugarnir undir augunum og svengdarlegt yfirbragðið gerðu það að verkum að menn fóru fljótt að kalla hann „fátæka Kanann“, og skólabörn bentu jafnvel á hann og köstuðu í hann grjóti þegar hann gekk fram hjá með gljáandi skeggið undir gullinni hitabeltissólinni. En það fékk ekki á Mr. Taylor að vera kominn í svo niðurlægjandi aðstæður því hann hafði lesið það í fyrsta bindi af Heildarverkum Williams G. Knight að smán fylgi ekki fátækt, beri maður ekki öfund í garð þeirra ríku. Eftir fáeinar vikur höfðu innfæddir vanist honum og kynlegum klæða- burði hans. Auk þess sýndu forseti landsins og utanríkisráðherra honum einstaka virðingu þar sem hann var bláeygur og með dálítinn hreim, enda voru þeir hræddir um að koma af stað fjaðrafoki í alþjóðasamfélaginu. Svo snauður var hann orðinn og vesæll að dag einn fór hann út í skóginn í leit að jurtum sér til næringar. Þegar hann hafði aðeins gengið fáeina metra, án þess að þora að líta um öxl sá hann af einskærri tilviljun gegnum laufþykknið glitta í tvö innfædd augu sem störðu á hann. Hægur hrollur fór niður eftir viðkvæmu baki Mr. Taylors, en hann var hugrakkur maður og lét þetta ekki á sig fá; hann hélt því áfram göngu sinni blístrandi líkt og ekkert hefði í skorist. Í einu stökki (ónauðsynlegt er að taka fram að hann stökk eins og köttur) var sá innfæddi kominn fast að honum og hrópaði: – Buy head? Money, money. Jafnvel þótt verri enska gæti tæplega hugsast áttaði Mr. Taylor sig á því, sér til nokkurrar hrellingar, að sá innfæddi var að bjóða til sölu einkennilega samanskroppið mannshöfuð sem hvíldi í lófa hans. Vart þarf að taka fram að Mr. Taylor hafði alls ekki ráð á að kaupa höfuðið; en þar sem hann þóttist
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.