Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 73
M i s t e r Ta y l o r TMM 2014 · 1 73 ekkert skilja fyrirvarð indíáninn sig óskaplega fyrir að tala ekki betri ensku, gaf honum höfuðið og afsakaði sig í bak og fyrir. Himinlifandi sneri Mr. Taylor aftur til kofa síns. um kvöldið lá hann á bakinu á þunnri strámottunni – sem nú var rúmið hans – og virti ánægður fyrir sér forvitnilegan gripinn í dágóða stund. Ekkert truflaði hann nema suðið í flugunum sem hringsóluðu æstar og mökuðu sig gróflega. Það sem þessa stundina uppfyllti fagurfræðilega þörf hans var að telja hárin á hökutoppnum og yfirvararskegginu, eitt og eitt í einu, og horfa í lítil hálf- glottandi augun sem virtust brosa til hans af þakklæti fyrir tillitssemina. Þar sem Mr. Taylor var mjög fágaður maður var hann gefinn fyrir heim- spekilegt grufl um alla hluti en í þessu tilviki varð hann strax leiður á hug- renningum sínum og tók þá ákvörðun að gefa frænda sínum, Mr. Rolston, höfuðið, en sá bjó í New York og hafði allt frá barnæsku hrifist mjög af menningararfleið þjóðflokka Rómönsku Ameríku. Fáeinum dögum síðar spurði frændi Mr. Taylors – vitanlega eftir að hafa innt hann eftir heilsu hans – hvort hann gæti vinsamlegast orðið sér úti um fimm höfuð til viðbótar. Mr. Taylor brást glaður við duttlungum Mr. Rol- stons – ekki er vitað hvernig – en í svarbréfi sínu sagði hann: „Það er mér einstök ánægja að verða við óskum þínum.“ Fullur þakklætis bað Mr. Rol- ston um tíu fleiri. Mr. Taylor sagði að sér væri „mikill heiður að geta veitt þessa þjónustu“. En mánuði síðar, þegar honum barst beiðni um tuttugu til viðbótar, fór sá grunur að læðast að Mr. Taylor, sem var ósköp venjulegur skeggjaður maður, en þó afar listhneigður, að móðurbróðir hans væri farinn að stunda viðskipti með höfuðin. Ja, ef þið viljið vita sannleikann, var einmitt þannig í pottinn búið. Mr. Rolston útskýrði mál sitt hreinskilnislega í andríku bréfi með viðskipta- legum hugtökum, sem snart svo sannarlega strengi hins viðkvæma anda Mr. Taylors. Innan skamms stofnuðu þeir hlutafélag þar sem Mr. Taylor tók að sér að útvega samanskroppin mannshöfuð og senda í miklu magni, aftur á móti skyldi Mr. Rolston selja þau á sem arðbærastan hátt í heimalandinu. Í fyrstu komu upp ýmis vandkvæði í tengslum við fáeina aðila staðarins. En nú komu í ljós pólitískir hæfileikar Mr. Taylors, sem hafði fengið hæstu einkunn í Boston fyrir ritgerð sína um Joseph Henry Silliman, og hann fékk leyfi yfirvalda, ekki aðeins nauðsynlegt útflutningsleyfi, heldur að auki sérleyfi til 99 ára. Það var auðsótt að sannfæra æðsta stríðsmann framkvæmdavaldsins og töfralækna löggjafarvaldsins um að slíkt fram- lag í anda ættjarðarástar myndi á skömmum tíma auðga samfélagið og fljótlega gætu frumbyggjar svalað þorsta sínum með því að drekka ískaldan svaladrykk (það er að segja í hvert sinn sem þeir gerðu hlé á hausaveiðum sínum), en sjálfur sæi hann um töfrauppskrift hans. Þingmenn gerðu sér allir grein fyrir kostum málsins og eftir að hafa brotið heilann stutta en afar uppljómandi stund fundu þeir hvernig þjóðernisástin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.