Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 74
A u g u s t o M o n t e r r o s o 74 TMM 2014 · 1 brann þeim í brjósti og á þremur dögum var samið frumvarp með kröfugerð þess efnis að þjóðin flýtti framleiðslunni á samanskroppnum höfðum. Fáeinum mánuðum síðar höfðu höfuðin náð fádæma vinsældum í landi Mr. Taylors, eins og okkur öllum er enn í fersku minni. Í fyrstu voru þau forréttindi efnameiri fjölskyldna, en lýðræði er nú einu sinni lýðræði – því getur enginn neitað – og innan fárra vikna höfðu jafnvel kennarar ráð á að kaupa þau. Það heimili stóð ekki undir nafni sem gat ekki státað af samanskroppnu höfði . Svo komu safnarar fljótlega til sögunnar og tilheyrandi mótsagnir í kjölfarið: það þótti ekki samræmast góðum smekk að hafa í eigu sinni sautján höfuð, en það var fínt að eiga ellefu. Með tímanum urðu þau svo algeng að fína fólkið missti áhugann og keypti aðeins eitt í algerum undan- tekningartilvikum, ef það hafði sérkenni sem greindi það frá hinum hvers- dagslegu. Danfeller-stofnuninni var gefið eitt sem var mjög sérstakt, með prússneskt yfirvararskegg. Í lifanda lífi mun það hafa tilheyrt margheiðr- uðum hershöfðingja, en stofnunin veitti strax á móti þrjár og hálfa milljónir dala til að hvetja til frekari þróunar á þessu sérlega spennandi menningar- formi meðal þjóða Rómönsku-Ameríku. Í millitíðinni hafði ættflokkurinn tekið svo miklum framförum að nú gat hann státað af eigin göngustíg í kringum Dómhöllina. Alla sunnudaga og á sjálfan þjóðhátíðardaginn fóru þingmenn eftir þessum skemmtilega stíg á hjólunum sem fyrirtækið hafði gefið þeim meðan þeir ræsktu sig, skörtuðu fjöðrum sínum og hlógu alvarlegir í bragði. En, hvað haldið þið? Það er ekki alltaf góðæri. Þegar menn áttu síst von á varð í fyrsta sinn vart skorts á höfðum. Og þá hófst mesta fjörið. Eðlilegur aldurtili dugði nú engan veginn til. Nótt eina þegar þokan lá þétt yfir varð heilbrigðisráðherrann gripinn einlægni og játaði fyrir konu sinni, eftir að hafa gælt við brjóst hennar um stund í myrkrinu svona bara til þess að gera það, að hann teldi sig nú ekki geta fjölgað dauðsföllum upp að því marki sem fyrirtækið krafðist. Hún sagði honum að hafa ekki áhyggjur, allt færi vel að lokum, og best væri að fara að sofa. Til að bæta fyrir þessa gloppu í stjórnkerfinu var óhjákvæmilegt að gera stórfelldar ráðstafanir og ströngum dauðarefsingum var komið á. Dómarar báru saman bækur sínar og gerðu hinar smávægilegustu yfir- sjónir að glæp sem var refsað fyrir með hengingu eða aftöku eftir því sem við átti. Meira að segja hin einföldustu glappaskot töldust glæpsamlegt athæfi. Tökum dæmi: Ef einhver glopraði út úr sér í ofur hversdagslegum samræð- um: „Það er mjög heitt“, og svo sannaðist eftir á með hitamælingu að það var í raun ekki svo heitt, þá var sá hinn sami sektaður um svolitla upphæð og samstundis færður fyrir aftökusveitina. Fyrirtækið eignaðist höfuðið, en rétt er að taka fram að bolinn og útlimi fengu syrgjendur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.