Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 76
A u g u s t o M o n t e r r o s o 76 TMM 2014 · 1 Þetta var upphaf endalokanna. Göngustígarnir eyðilögðust smám saman. Einstaka konu sást þar bregða fyrir endrum og eins, eða verðlaunaskáldi með bók sína undir arminum. Báðir stígarnir urðu illgresi og þyrnum aftur að bráð og dömur með sitt fínlega göngulag áttu bágt með að fóta sig. Reiðhjólum fækkaði rétt eins og höfðunum og kumpánlegar bjartsýniskveðjur hurfu nánast með öllu. Líkkistusmiðurinn hafði aldrei verið jafn niðurdreginn og jarðarfarar- legur að sjá og nú. Og öllum fannst þeir muna eftir gömlum draumi, einum af þessum unaðslegu draumum þegar maður finnur poka fullan af gull- peningum og setur hann undir koddann og fer aftur að sofa, en þegar maður vaknar svo um morguninn grípur maður í tómt þegar á að endurheimta hann. Þrátt fyrir allt héldu viðskiptin áfram, með herkjum þó. En fólk átti erfitt með að festa svefn og óttaðist að verða útflutningi að bráð þegar það vaknaði. Í heimalandi Mr. Taylors jókst eftirspurnin að sjálfsögðu með hverjum deginum. Daglega komu fram nýjar uppfinningar, en innst inni hafði enginn trú á þeim og allir kröfðust litlu höfðanna frá Rómönsku Ameríku. Það styttist óðum í síðasta áfallið. Mr. Rolston bað örvæntingarfullur um fleiri og fleiri höfuð. Jafnvel þótt birgðir fyrirtækisins snarminnkuðu var Mr. Rolston sannfærður um að systursonur hans gerði allt sem í hans valdi stæði til að bjarga honum úr klípunni. Sendingarnar, sem áður voru daglegar, strjáluðust niður í eina á mánuði og hvaðeina var sent: höfuð af börnum, konum, þingmönnum. Skyndilega hætti allt saman. Einn dimman og drungalegan föstudag kom Mr. Rolston heim úr kaup- höllinni og var ennþá miður sín vegna upphrópana og átakanlegrar hegð- unar vina sinna sem voru gjörsamlega ráðalausir. Þegar hann opnaði pakka sem beið hans, ákvað hann að stökkva út um gluggann (í stað þess að nota skammbyssu sem hefði valdið hávaða og hryllingi), því við honum blasti smátt höfuð Mr. Taylors, sem brosti úr fjarlægð, frá hinu villta Amasón- svæði, eins og barn með falskt bros á vör, og virtist segja: „Fyrirgefðu, ég skal aldrei gera þetta aftur.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.