Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 98

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 98
S i l j a A ð a l s t e i n s d ó t t i r 98 TMM 2014 · 1 var ekki mikill missir. Ingvar E. Sigurðsson fékk þó að skína í aðalhlut- verkinu, drekka sig út úr og sýna hörmulegar afleiðingar áfengisneyslunnar. Listilegir taktar hans í þessu áttu áreiðanlega stærsta þáttinn í velgengni sýningarinnar. Á sviðinu í Jeppa (eftir Gretar Reynisson) var geysimikið hamsturshjól sem nýttist á ýmsa vegu í sýningunni. Þar gerðist líka eftirminnilegasta atriði sýningarinnar þegar Jeppa veslingnum var fleygt upp á hjólið og því snúið þannig að hann þeyttist um, fram og aftur, upp og niður. Mér var hreinlega orðið bumbult þegar ég fattaði loksins að þetta var ekki Ingvar, guði sé lof, heldur eftirmynd hans úr tuskum! Kostulegt atriði. Ein fyrsta sýning ársins var á Hjartaspöðum í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Afar skemmtileg sýning hjá Skýjasmiðjunni, leikin af grímu- klæddum leikurum alveg án orða undir stjórn Ágústu Skúladóttur. Sagan er sígild, snýst um eina konu og tvo karla sem elska hana og þrá, en ýmislegt varð til þess að bjarga verkinu frá klisjunum. Grímurnar gerðu sitt auðvitað en ekki síður það að verkið gerist á elliheimili og trekanturinn er vistmenn á því. Leikararnir voru allir ungir, Orri Huginn Ágústsson, Stefán Benedikt Vilhjálmsson og Aldís Davíðsdóttir sem einnig hannaði grímurnar góðu, en þau sýndu aldurinn með sannfærandi látbragði og tókst jafnvel að láta grímurnar sýna hin fjölbreyttustu svipbrigði þó að þær væru úr hörðu efni og hefðu ekki átt að birta nokkrar innri tilfinningar persónanna. Og af því Gaflaraleikhúsið er til umræðu má ég til með að nefna (þó að þar hafi ekki verið atvinnuleikarar að verki) að unglingar og þeirra líf var líka til umræðu þar í fantagóðu stykki eftir tvo ekta unglinga, Arnar Björnsson og Óla Gunnar Gunnarsson, leikið af þeim sjálfum undir stjórn móður annars þeirra, Bjarkar Jakobsdóttur leikkonu. Gaman var líka að sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jóns- messunótt eftir Shakespeare sem Stefán Jónsson stýrði. Þetta er eitt þeirra verka sem maður verður aldrei leiður á, hversu oft sem það er sett upp. En sérstaklega er gaman að sjá það í meðförum ungs fólks eins og í þetta sinn; það er svo fullt af ungri orku, ást og ástarþrá, hrekkjum, bulli og djöfulskap! Síðla árs sýndi Þjóðleikhúsið í Kassanum Pollock eftir Stephen Sachs þar sem Hilmir Snær Guðnason stýrði Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Pálma Gests- syni í alveg prýðilegri sýningu um Maude sem býr í hjólhýsi en hefur kannski glæpst á að kaupa málverk eftir Jackson Pollock. Þess vegna hóar hún í list- fræðinginn Lionel og biður hann að skera úr um málið. Það var augljóst hvað þau Ólafía og Pálmi nutu þess að leika þennan bitastæða texta í slíku návígi við áhorfendur og þau slógu heldur hvergi af, hvorki í rifrildum sínum né áflogum. Við fáum aldrei beinar upplýsingar um að málverkið sem allt snýst um sé eftir Jackson Pollock. Mér fannst fyrst á eftir að listfræðingurinn hefði játað það óbeint með því að hindra Maude í að skera málverkið í ræmur, en auðvitað þarf það ekki að vera. Það nægir að hann sé í vafa. Jólasýning Þjóðleikhússins var um það bil tvö þúsund og fimmhundruð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.