Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 143

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 143
TMM 2014 · 1 143 Höfundar efnis: Aðalsteinn Ingólfsson er listfræðingur og hefur ritað fjölda bóka um þau efni. Fyrir síðustu jól kom út bók hans um Karólínu Lárusdóttur málara. Anton Helgi Jónsson er ljóðskáld. Hann hlaut nýlega Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Horfurnar um miðja vikuna og væntanleg er ný ljóðabók frá honum. Augusto Monterroso (1921–2003) var frá Guatemala en skrifaði flest verk sín í Mexíkó. Árið 2013 kom út hjá Bjarti þýðing Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur á bók hans Svarti sauðurinn og aðrar fabúlur, og hlaut Kristín fyrir þá þýðingu Íslensku þýðingaverðlaunin. Ágúst Borgþór er rithöfundur sem sérhæft hefur sig í smásagnagerð. Árið 2010 kom út eftir hann stutt skáldsaga, Stolnar stundir. Erla Þórdís Jónsdóttir (1929–1987) var kennari í Reykjavík. Á síðasta ári kom út heimildaskáldsaga dóttur hennar, Þórunnar Erlu Valdimarsdóttur, Stúlka með maga, þar sem Erla er sögumaður. Guðrún Hannesdóttir er ljóðskáld og bókasafnsfræðingur og hefur um árabil gert bækur fyrir börn með eigin myndskreytingum. Hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2007. Árið 2010 kom út ljóðabók hennar Staðir. Hannes Lárusson er myndlistarmaður, hann var uppalinn fyrstu árin í gamla bænum í Austur-Meðalholtum í Flóa. Síðustu áratugina hefur Hannes lagt sig eftir sértækri verkmenningu og fagurfræði íslenskra torfbæja. Helgi Björnsson hefur starfað lengi sem jöklafræðingur við Háskóla Íslands. Árið 2009 kom út verk hans Jöklar á Íslandi og hlaut hann fyrir það Íslensku bók- menntaverðlaunin. Herberto Padilla (1923–2000). Kúbanskt ljóðskáld og stuðningsmaður kúbönsku byltingarinnar en var fangelsaður árið 1971 og fór í útlegð árið 1980. Jón Óskar Sólnes var fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og starfaði við friðargæslu, meðal annars í Sri Lanka og ritaði um þá reynslu bókina Powderkeg in Paradise. Hann hefur verið fastafulltrúi Samtaka atvinnulífsins hjá BuSINESSEuROPE í Brüssel undanfarin ár en rekur nú ráðgjafarfyrirtækið Hagvit. Kristian Guttesen er ljóðskáld og háskólanemi. Hann hefur verið ötull að birta ljóð í tímaritum og bókum og seinasta ljóðabók hans kom út árið 2012, Vegurinn um Dimmuheiði. Kristín Guðrún Jónsdóttir er aðjúnkt í Spænsku við HÍ. Hún hlaut Íslensku þýðinga- verðlaunin árið 2013 fyrir þýðingu sína á Svarti sauðurinn og aðrar fabúlur eftir Augusto Monterroso. Ólafur Gunnarsson er rithöfundur. Seinasta bók hans var skáldsagan Málarinn sem kom út árið 2012. Ólafur Þ. Harðarson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson er bókmenntafræðingur og íslenskukennari, búsettur í Þýskalandi. Páll Valsson er bókmenntafræðingur, rithöfundur og ritstjóri Skírnis. Hann hefur fengist mikið við 19. aldar fræði, meðal annars skrifað ævisögu Jónasar Hallgríms- sonar og ritstýrt ritsafni hans. Seamus Heany (1939–2013). Var eitt helsta skáld Íra á sinni tíð og hlaut meðal annars Bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1995. Hann kom til Íslands árið 2004 á Listahátíð og flutti ljóð sín. Sigurður Ingólfsson er skáld og heimspekingur sem fengist hefur jöfnum höndum við kennslu og ritstörf. Nýlega kom út eftir hann ljóðabókin Ég þakka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.