Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 59

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Side 59
Þ e g a r b l i n d g a t a n o p n a s t t i l a l l r a á t t a TMM 2014 · 4 59 í Sauðlauksdal. Í gáttinni mætast sá sem telst mislukkaður á mælikvarða ríkjandi viðmiða samfélagsins, sá sem hefur farið illa með hæfileika sína og hinn sem gegnt hefur embættum þess og nýtt eiginleika sína af elju. Björn þolir ekki drykkjuskap Halldórs, telur hann ekki mennskan nema „í skilningi moldarinnar og hafsins“ en segir hann vera „náttúruvætt sem“ fylgi „kvöð landsins um eilífa fordæming og bölvun.“ (bls. 59) Halldór reynist þó sú aukapersóna sem mestu skiptir. Hann knýr t.d. fram atburðarásina drjúgan hluta sögu og er ekki bara annar tveggja sögumanna heldur hefur beinlínis áhrif á það hvernig Björn segir frá á köflum – svo ekki sé minnst á að frásagnir sem honum tengjast eru meðal hinna allraskemmti­ legustu í sögunni.23 Í sendiferð með mjöl og brennivínstunnu sem ætluð er til messugerða á Grenjaðarstað, verður Halldór freistingunni að bráð og drekkur af tunn­ unni uns drykkjan leiðir hann vestur til Björns. Þangað kemur hann ær af víni og upphefur ferðasögu sína. Hafi lesanda fyrr þótt presturinn mælskur, reynist etasráðið síst eftirbátur hans. En ferðasaga þess vekur upp önnur skemu í huga lesanda en frásögn prestsins. Ýti þankar hins síðarnefnda t.d. einatt við skemum sem tengjast biblíunni – sbr. eplið og sköpunarsöguna: Bann að engu haft, brottrekstur úr Paradís o.s.frv. – kyndir ræða hins fyrr­ nefnda ekki síst undir skemum þjóðsagna svo ekki sé talað um ýkjusagna ef hún leiðir mann ekki bara á vit fútúrískra ljóðmynda („Ég er maðurinn sem klæðist skýjum“ (bls. 71)) og þar með til að blanda ögn af Majakovskí í Gestakomurnar. Eftirfarandi brot má hafa sem dæmi um hvernig ræða Hall­ dórs vekur upp ýmis skemu – þannig að hugir lesenda geti farið víða: Hjarðeðli hugans þráði hærða karlmenn í heitri laug, svitastorkna nótt við konu­ brjóst, ég var sú eðla er skreið laumufarþegi um skonnortur herraþjóðanna. Í hvarfi alls lífs og allrar nándar sannaðist minn innri maður: ég eiri mér hvergi nema í nánd við þjáningu og svik, hefði gefið landið með vottorði og nafni ef aðeins ein góðleg huldumey hefði birst út úr kletti með hreinritaðan samning: hér ert þú Halldór Mogensen Etasráð, nú skaltu hverfa með þína fjörutíuþúsund þegna og láta hraun, sand, gras, fjall og á í hendur meistarans. (bls. 68) Kómískur væll og sjálfsásökun drykkjumannsins verða óhugnaði blandin af því að skömmu áður á ferð sinni hefur Halldór brennt sjálfa Guðbrands­ biblíu til að halda á sér hita. Kunni lesendur að kíma andspænis mælsku hans og athöfnum öllum er því eins víst að með þeim vakni uggur vegna skemans „að selja sál sína“ sem frásögn hans vekur. En þegar á það rekast önnur skemu eins og „að komast lífs af með ólíkindum“ (sbr. Munchausen og að Halldór drekkur t.d. „blóðið úr eigin holdi“ (bls. 67)) og drauga­ sagna skema ((myrkfælin) persóna á ferð, tunglið rennur upp, o.s.frv.) er ekki ólíklegt að í kolli lesenda hefjist vangaveltur um framhaldið sem geri Halldór að spennuvaldi – jafnvel tvíeinum Galdra­Lofti Jóhanns og Faust Goethe? − það sem eftir lifir sögu. En verði það ekki í frásögn hans sjálfs,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.