Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 29
S k r í m s l i ð o g k a k ó b o l l i n n TMM 2018 · 3 29 Fríða! sagði þessi frú, sem var ein mikils háttar loftgyðja, tak hér á móti launum fyrir það þú valdir svo vel þinn ektamaka! Þú mast meira dygð og góðgirni, heldur enn fríðleika og skarpleika. Þú forþénar þess vegna að finna allt þetta sameinað hjá einni og sömu manneskju. Þú verður nú mektug Drottning, og ég vona að það háa stand ekki skemmi þínar dygðir. Hvað ykkur viðvíkur, konukindur!, sagði Loftgyðjan við báðar eldri systurnar, þá þekki ég ykkar hjartalag og alla þá vonsku sem þar býr. Verðið þið að tveimur steinstoðum, en þið skuluð halda allri ykkar skynsemi innan í steininum, þið skuluð standa þar sín við hvorn dyrastafinn á slotinu hennar Fríðu, og ég legg ekkert á ykkur nema að horfa þar upp á hennar lukku, og þið skuluð ekki komast aftur í ykkar fyrra stand, fyrri enn þið þekkið ykkar bresti. Það hefir skeð, að menn hafa orðið leiðréttir frá stolti, bræði, óhófsemi og leti, en kraftaverk er það, þegar sá, sem er illgjarn og öfundsjúkur, umvendist. Loftgyðjan sló sprotanum sínum á gólfið, og flutti alla þá, sem í salnum voru í ríki hins unga kóngs, þegnum hans var mikill fögnuður að sjá hann aftur. Hann giftist Fríðu sinni, lifðu þau bæði lengi og vel í fullkominni farsæld, af því hún var grund- völluð á dygðinni. 30 Lokaorð Öll ævintýri eru töfraspegill sem draga fram eitthvað úr okkar innra lífi, sagði sálgreinandinn Bruno Bettelheim. Þannig fjallar sagan um Fríðu og Dýrið um kynferðislegan þroska unglingsins sem flytur ást sína á foreldri yfir á annan einstakling. Hér er það Fríða sem áttar sig á því að hún elskar í raun Dýrið meira en föður sinn og yfirstígur um leið óttann við kynlíf og þá hugsun að það sé viðbjóðslegt og dýrslegt. Þannig verður hið nýja við- fang ástarinnar fagurt þegar einstaklingurinn sættir sig við breytinguna.31 Þótt deila megi um þessa túlkun á ævintýrinu er rétt að nefna að rósin hefur lengi verið tákn fyrir ást, bæði andlega og líkamlega. Bón Fríðu mætti því túlka sem löngun ungrar stúlku til að kynnast ástinni.32 Einnig má rifja upp þá skoðun breska rithöfundarins Marine Warner að í ævintýrinu um Fríðu og Dýrið megi sjá gagnrýni á vald foreldra sem giftu dætur sínar eftir hentugleika, eins og algengt var þegar Fríða og Dýrið varð að bókmennta- legu ævintýri. Ungum stúlkum var fórnað fyrir peninga og þjóðfélagsstöðu og þær látnar giftast mönnum sem voru miklu eldri en þær; stúlkurnar hafi því óttast mennina og þá líkamlegu nánd sem var í vændum og útlit Dýrsins endurspegli þessa ógn.33 Mme de Villeneuve hefur eflaust verið vel kunnugt um þessa stöðu margra ungra kvenna sem bar að hlýða foreldrum sínum, föður, og svo móður, ef faðirinn var ekki til staðar, og þegar konan var gengin í hjónaband hlýddi hún manni sínum. Þess vegna voru margar konur sáttar við ekkjustand á þessum tíma, eins og hún sjálf; þá gátu konur ráðið sér sjálfar svo framarlega sem þær höfðu efni til.34 Ef til vill er rétt að lesa sögu Mme de Villeneuve út frá þessu sjónarhorni þótt við getum ekki vitað hvað vakti fyrir henni með skrifunum annað en að vinna fyrir sér með því að taka TMM_3_2018.indd 29 23.8.2018 18:36
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.