Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 117
H u g v e k j u r
TMM 2018 · 3 117
þátt í að hvetja yfirvöld til að berja
niður frelsisbaráttu fólks með harðýðgi
og ofbeldi. Þar að auki var hann
ofstækis fullur gyðingahatari sem taldi
að gyðingar ættu ekki að eiga neitt lífs-
rými í Evrópu. Rétt væri að þeir færu
þaðan. Nasistarnir notfærðu sér að sjálf-
sögðu siðferðilega veikleika mótmæl-
enda sem og kaþólskrar kirkju. Þegar
ráðist var inn í sýnagógur gyðinga á
Kristalsnóttinni 1933 var lesið í útvarp-
inu úr verki Lúthers: „Gyðingarnir og
lygar þeirra.“
En þetta var einungis ein hliðin á
áhrifum trúarbragða á stjórnmál. Hjá
Mitau lásum við einnig verk Reinholds
Niebuhr: Moral man and immoral
society. Niebuhr var af þýskum ættum,
prestur mótmælenda í Detroit sem barð-
ist fyrir réttindum verkalýðs til að lifa
mannsæmandi lífi og njóta réttarins til
frelsis og jafnréttis sem lofað er í Sjálf-
stæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna frá
1776. Réttar sem atvinnurekendur og
málaliðar þeirra neituðu þeim um með
kúgun og vopnavaldi. Grundvallarvið-
horf Niebuhrs kristallast í Æðruleysis-
bæn hans:
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Alkóhólistar hafa tileinkað sér þessa
bæn en uppruni hennar er samt annar.
Niebuhr var að leggja áherslu á ábyrgð
sérhvers einstaklings. Að sætta sig ekki
við það óréttlæti og þá kúgun sem er
mannanna verk.
Okkur ber undantekningalaust
skylda til að sýna í verki hollustu við
boðorð Jesú Krists: „Það sem þér viljið
að aðrir menn gjöri yður skuluð þér og
þeim gjöra.“
Sért þú kúgaður og ofsóttur óskar þú
þess að samferðafólk komi þér til varn-
ar. Kúgun eins er uppskrift að vondu
samfélagi fyrir okkur öll. Á okkur öllum
hvílir undantekningalaust skyldan til að
vinna gegn manngerðu óréttlæti og
kúgun heimsins.
Þá erum við komin að takmörkunum
greininga á hugmyndafræði og stjórn-
málastefnum. Sömu hugmyndir leiddu
ekki af sér sömu hegðun. Kristið fólk gat
legið marflatt fyrir nasismanum. Það
gat einnig risið upp og jafnvel fórnað
eigin frelsi og lífi í baráttu gegn öflum
myrkursins eins og annar mótmælenda-
prestur, Dietrich Bonhoeffer, gerði. Nas-
istar pyntuðu hann og tóku af lífi eftir
að hann tók þátt í banatilræði við Hitler.
Evrópubúar þekktu almennt vel
kenningar um frelsi, jafnrétti og lýð-
ræði. Engu að síður varð 20. öldin öld
öfganna – tími sigurs nasisma og
kommúnisma, tími Auschwitz og
Gúlagsins. Árið 1943 voru einungis eftir
5–6 lýðræðisríki í Vestur Evrópu og er
þá vítt talið. Þarna var m.a. Sviss þar
sem konur höfðu ekki kosningarétt og
Ísland þar sem Alþingi ákvað árið 1941
að efna ekki til kosninga það ár eins og
stjórnarskráin mælti fyrir um heldur í
síðasta lagi árið 1945 eða átta árum eftir
þingkosningar árið 1937. (Meginrök-
semdin var að ekki væri hægt að halda
lýðræðislegar kosningar vegna heims-
styrjaldarinnar og setu erlends herliðs í
landinu. Árið 1942 ákvað meirihluti
Alþingis gegn hörðum mótmælum
þingmanna Framsóknarflokksins að
þing yrði rofið og tvennar þingkosning-
ar haldnar það ár til að breyta ákvæðum
stjórnarskrárinnar um kjördæmaskipan
og kosningar. Heimstyrjöldin stóð samt
enn og fjölmennur erlendur her áfram í
landinu.)
Þekking á siðfræðikenningum um eðli
TMM_3_2018.indd 117 23.8.2018 14:19