Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Blaðsíða 18
Vopnaður nazistaskríll setur Reykjavík
í hernaðarástand.
Sendir út bréf þar sem hvatt er til blóSsúthellinga.
Ætla sjálfir að drepa tvo sína menn? Dómsmála-
ráðherra tekur málið heljartökum, þrátt fyrir
1. maí.
Um nokkur undanfarin ár hefur 1. maí verið
almennur gleði- og upplyftingardagur hinna vinn-
andi stétta í Reykjavík, og því notið almennra vin-
sælda, nema helzt hjá þeim af kratabroddunum,
sem ekki hafa getað snuðað sig frá því að marséra
við hlið hinna óbreyttu þann dag. Jafnvel hefur
venjulegt íhald (sem til skamms tíma var svart-
asta íhaldið) látið daginn nokkurnveginn í friði,
og hefur hann hingað til borið rauða litinn með
sóma.
Nazistar.
Svo lítur helzt út, sem það hafi verið full mein-
ing óaldarflokks þess, sem kennir sig við nasirnar
eða Nasa, að gera dag þennan rauðan í öðrum
skilningi, sem sé að bardaga- og blóðsúthellinga-
degi. En skrílmenni þessi vöruðu sig ekki á því,
að forsjónin, sem hefur látið sér meira og minna
annt um íslenzka ríkið, nú í 1006 ár, var á höttun-
um og tókst að innblása þessum trantaralýð svo
miklum gapaskap og ofstopa, að hann gætti sín
ekki, og varð það til þess, að landráðabréfið, sem
prentað er hér á eftir, komst á Glámbekk, og
Glámur — Pálmi rektor — var þá eiginlega ekki
að setjast ofan á það, eins og flestir aðrir hefðu
gert, heldur las það, og var fljótur að hringja í
Hermann, sem brá við skjótt, er Pálmi hafði bent
honum á, að hér væri nýr níundi — eða jafnvel
tíundi — nóvember í aðsigi, ef ekki væri hafizt
(XI. 6.-7.)
þingannir, og kæfir uppreistina með aðstoð lög-
reglunnar og Pálma rektors.
handa og gripið föstum tökum á kýlinu og hinir
nazistisku þjóðfélags-graftarnaglar kreistir. Und-
ir eins og Hermann hafði jafnað sig nægilega,
hringdi hann á lögregluna og gerði hún með góð-
um árangri húsrannsókn í hreiðri uppreisnar-
manna. Fann hún þar fjölda hakakrossa og ann-
arra hermerkja, sem hættuleg geta talist, en vél-
byssunum munu byltingarmennirnir hafa komið
undan áður en lögreglan kom á vettvang. Vér birt-
um hér bréfið, sem varð til þess, að þessir óvinir
ríkisins fengu makleg málagjöld.
Bréfið.
Samherji!
Veiztu hvaða dagur er fyrstur í maímánuði?
Nei, þú veizt það ekki, en þá skal ég segja þér
það: Það er 1. maí! Þessi dagur hefur hingað til
verið aðalútbreiðsludagur landráðaflokka marx-
ista, svo að það væri skárri andskotinn, ef við ætt-
um ekki að reyna að breiða eitthvað úr okkar
flokki þann dag, og sýna, að fleiri eru menn með
mönnum en rauðu djöflarnir, sem alltaf hafa ver-
ið að æsa til stéttahaturs og morða, svo að við höf-
um ekki komizt að. Þetta þolum við nú bara ekki
lengur, og nú skulum við sýna þessum bölvuðum
dónum, hvar Davíð keypti ölið, en til þess er alveg
nauðsynlegt, að ÞÚ mætir, og það í búningi, því
að annars respekterar okkur enginn, og illa hvort
14