Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Blaðsíða 58
af. Bróðir Ambrósíus banaði stórt hundrað völsk-
um í landareign heilagrar kirkju í Landakoti og
þá fyrir aflausn af páfa. Langskipið Óðinn selt
sænskum niðurskrúfuðu verði. Starfaði ferða-
skrifstofa hirðstjóra að leiðsögu og landkynning
til mikils óhagræðis fyrir efnahag landsins og svo
reisendur. Vopnaðir þjóðernishnöggvingar efldu
byltingu, en runnu á flótta fyrir herjum þeirra
Hermanns hirðstjóra og Pálma skólameistara.
Reisti Ingvar veiðimaður Guðjónsson til landsins
helga með síldarlest; varð ágóði lítill, en ófriður
hefur síðan geisað þar í landi. Englandsreisa Ey-
steins fjármanns. Sat hann í góðu yfirlæti hjá
höfðingjum Engla og hegðaði sér að öllu sem full-
tíða maður, að því er hann sjálfur hermir í vasa-
bókarbroti því, er hann hefur ritað um ferðina.
Útkoma Christiani X. Var erindi hans að heimta
skatta af löndum sínum; greiddist illa skattur-
inn, en konungur hafði tilkostnað mikinn af
íþróttamönnum, er honum þótti fátæklegastir allra
þegna sinna. Gerðust jarteinir nokkrar í sam-
bandi við komu jöfurs, í jörðu og á, er Geysir
hinn mikli í Haukadal hætti að gjósa meðan kon-
ungur dvaldi hér og merkisstengur Alþýðuhúss-
ins hurfu á næturþeli. Magnús Torfason og Gísli
af Langanesi kjörnir í bankaráð Útróðrabankans.
Segja menn, að banki sá sé eigi með réttu ráði
síðan. Morgunblaðið efndi til samkeppní um kval-
ræði í mat, með hræðilegum árangri. Sendi dana-
stjórn hingað út Þorvald víðförla kæmeistara kon-
ungs. Sat hann hér um hríð og hafði drykkjur
stórar. Vísiteraði kúabú ísfirðinga, þar er Dratt-
halastaðir nefnast, og lét lítt yfir. Útrýming Jón-
asar Þorbergssonar úr Framsóknarflokknum.
Fóru erindrekar stjórnarinnar til Englands og
komu aftur hraktir og forsmáðir. Þá var með lög-
um aflagður vopnaburður jafnt heldri manna sem
almúgans, og mæltist misjafnlega fyrir. Sló í
snerru með þeim Haraldi harðráða og Nikulási
skólameistara úr Dungalsbæ, er Haraldur bað um
Fœtui. (XI. 23.-24.)
Margir nota fætur - bæði hundar, hross og menn
mecS heilmiklu af beinum, kjöti, völum og af liðum.
Fótavistin þótti — og hún þykir mörgum enn —
með þægilegri, skemmtilegri’ og notalegri siðum.
Ég og fleiri ungir menn við töltum fótum tveim,
með tryggðapant í vasanum, hvert kvöld á stefnu-
mótin.
Stúlkurnar þær eru víst um allan þennan heim
ákaflega sniðugar að gefa undir fótinn.
Nettir meyjafætur tifa bæði út og inn,
ákaflega penir, þegar stytta tekur daginn.
A rentufótum bankinn gengur bisnissveginn sinn,
með borðfótum og stólfótum er Héðinn til í slaginn.
orðið, en Nikulás taldist ekki geta án þess verið.
Hlaut Haraldur því að þegja og var gerður góður
rómur að. Tók hann að lokum það ráð að stökkva
Nikulási úr landi. Hrútasýningar fórust á þessu
ári fyrir í Vestfirðingaf jórðungi, vegna þangað-
komu Páls Zophóníassonar. Urðu margar ær lamb-
lausar, en aðrar hlupu á fjöll, er þær sáu Pál.
Meðalþyngd dilka fannst loks á þessu ári, og vakti
mikla athygli.
Es'pólín SPEGILSINS.
54