Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2020, Page 61
KATLA KJARTANSDóTTIR Og KRISTINN SCHRAM
60
Náttúrustofu Suðurlands drapst fuglinn aðeins tveimur dögum eftir að
honum var bjargað, vegna þess að hann hafði þá innibyrt of mikið af olíu.30
Í verkum Huldu Rósar guðnadóttur myndlistarkonu hefur lundinn einn-
ig verið mjög áberandi. Í nýlegu verki hennar All is full of love (2018) tekur
hún til dæmis fyrir lundann sem táknmynd og mikilvægan hlekk í sköpun
þjóðernisímyndar Íslands þar sem áhersla er lögð á óspillta og hreina nátt-
úru. Í þessu verki má meðal annars sjá ljósmyndir af listamanninn, á rauð-
bleikum, sparilegum kjól og rauðum, háhæluðum skóm með stóra lunda-
grímu á höfðinu. Í þessari múnderingu stillir listamaðurinn sér svo upp í
hinum ýmsu tælandi stellingum. Verkið minnir því einna helst á einhvers
konar „pin-up“ myndir eða annað af því tagi, þar sem hinni kvenlegu (lunda)
manneskju er breytt í kyngerða söluvöru. Hluti af þessu verki er einnig all-
stór hrúga, eða eins konar fjall, af litlum lundaböngsum sem stillt hefur
verið upp á einföldu borði. Þessir bangsar voru sérstaklega framleiddir, í tak-
mörkuðu upplagi, fyrir þetta tiltekna verk. Fyrir áhugasama er svo mögulegt
að kaupa slíka „minjagripi“ sem allir eru merktir listamanninum með sama
hætti, með orðunum: „All is full of love 2018/Studio Hulda Rós guðna-
dóttir/Made in China“.31
Verk Huldu Rósar Material Puffin frá árinu 2014 snýr einnig að lund-
anum en þar tekst hún jafnframt á við þjóðernisímyndir og sjálfsmyndir
Íslendinga, í bæði sögu og samtíma. Enn fremur hristir hún upp í hefð-
bundnum kynjahlutverkum, þar sem sjómennska hefur iðulega verið tengd
karlmennsku. Þá vekur verkið einnig upp spurningar í tengslum við marg-
slungið samband menningar, náttúru og dýra.32 Í upphafi verksins vaknar
upp af værum blundi kvenpersóna í hátíðlegum, síðum, bleikum kjól með
stóra lundagrímu á höfðinu. Eins og sést á heimasíðu Huldu Rósar, þar sem
myndbandshluta og stillur úr verkinu er að finna, gengur hún svo í róleg-
heitum um höfnina og kannar svæðið ítarlega. Hún fær sér sæti, þreifar á
hinu og þessu og virðist vera að velta hlutum fyrir sér – síðar í verkinu tekur
hún svo stjórnina og vísar stóru skipi rétta leið. Á meðfylgjandi stillu úr
verkinu má sjá hvernig þessi kvenlega (lunda)manneskja tekur sér bensín-
dælu í hönd og spreyjar, að því er virðist, gulli og glimmeri í hafið.
Sjónræn frásögn Huldu í verkinu gefur karlmannlegu hafnarsvæðinu
30 Tölvupóstsamskipti við starfsmann Náttúrustofu Suðurlands, 18. september 2019.
31 Á heimasíðu Huldu Rósar guðnadóttur má sjá ljósmyndir frá innsetningunni:
http://www.huldarosgudnadottir.is/all-is-full-of-love, sótt 17. desember 2019.
32 Verkið má sjá á heimasíðu Huldu Rósar guðnadóttur, http://www.huldarosgudna-
dottir.is/materialpuffin, sótt 18. nóvember 2019.