Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2020, Page 164
Myndaþáttur
Í eftirfarandi myndaþætti birtast fimm myndir eftir íslenska, breska, fær-
eyska og danska listamenn. Myndir þeirra fjalla, hver með sínum hætti, um
samband mannfólks og dýra. Fyrsta myndin er eftir danska ljósmyndarann
Brian Berg og er af uppstoppuðum lunda í einkaeigu. Myndin er hluti af ser-
íu sem ber heitið Hlutir í huga sem sýnd hefur verið í Jónshúsi í Kaupmanna-
höfn og Norræna húsinu í Reykjavík. Myndaserían er hluti af þjóðfræðilegri
viðtals- og vettvangsrannsókn Kötlu Kjartansdóttur og Kristins Schram á
meðal Íslendinga í Danmörku. Eins og fram kemur í grein þeirra Flakk og
framhaldslíf: lundar og hvítabirnir á mannöld hefur lundinn á síðustu árum
öðlast margvíslega merkingarauka, meðal annars í tengslum við alþjóðlega
ferðmennsku og umhverfismál. Uppstoppaðir lundar á heimilum fólks hafa
hins vegar ef til vill aðra og hugsanlega mun persónulegri merkingu, líkt og
lundinn sem hér birtist.
Önnur myndin er eftir myndlistarkonuna Guðlaugu Gunnarsdóttur og
er einnig hluti af stærri seríu myndverka. Í seríunni Kallar, sem unnin var
á tímabilinu 2015 - 2018 eru portrettmyndir af fyrirmennum helstu tíma-
bila Íslandssögunnar prentaðar á A4 blöð. Við tekur síðan „skurðaðgerð“
með kolum og krít þar sem viðkomandi andliti er umbreytt í dýr. Dýrið er
valið eftir því hvað passar best við andlitsfall viðkomandi. Að lokinni aðgerð
er „andlitið“ óþekkjanlegt, en öllu hefur verið umbreytt nema augum og
klæðnaði. Hér er það virðulegur og nokkuð kankvís þvottabjörn sem birtist
okkur í jakkafötum og með bindi.
Þriðja myndin er eftir þau Mark Wilson og Bryndísi Snæbjörnsdóttur.
Myndin er úr myndaseríu af uppstoppuðum hvítabjörnum sem finna má í
opinberum byggingum í Longyearbyen á Svalbarða. Sem dæmi má nefna
barnaskólann, kirkjuna, spítalann, flugvallarbygginguna, sýslumannsskrif-
Ritið
1. tbl. 20. árg. 2020 (163-170)
© 2020 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundar greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI: 10.33112/ritid.20.1.7
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).