Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2020, Blaðsíða 159
GUðRÚn STEInÞóRSDóTTIR
158
henni verður eigið þýðingarleysi ljóst: „hún er stjórnlaus líkami í stjórn-
lausum heimi, móðir án barns, gift kona án eiginmanns, húseigandi sem á
hvergi heima“ (297). Tilfinningarnar sem vakna eru ekki lengur ótti, sektar-
kennd eða eftirsjá heldur fyrst og fremst skilyrðislaus ást og samkennd til
Ívars og Jóhönnu.87 Í lok bókar er ekki ljóst hvað verður um Sögu, deyr hún
eða lifir áfram? Svarið liggur hjá lesanda sem þarf að gera upp við sig hvernig
hann fyllir inn í þá eyðu;88 þangað til er Saga „hugarburður í frjálsu falli“.89
Stóri skjálfti er athyglisverð stúdía á manninum og óáreiðanleika minnis-
ins. Þótt flogaveik persóna sé í brennidepli og upplifun hennar markist af
afleiðingum sjúkdómsins gera tengsl veikindanna við minnið, gleymskuna
og áföllin það að verkum að reynsla Sögu er sammannleg. Sagan eflir því
ekki aðeins skilning og þekkingu á flogaveiki og fylgikvillum hennar heldur
varpar hún fyrst og fremst fram mikilvægum spurningum um hvernig við
skiljum veruleikann: Munum við það sem við munum? Vitum við það sem
við vitum? Hvaða sögur segjum við okkur þegar við endursköpum fortíðina?
Eins og sýnt hefur verið fram á í þessari grein er það manninum eiginlegt að
skálda lífið svo þegar allt kemur til alls er kannski „allt okkar líf […] ekkert
nema skáldsaga“ (229).90
87 Líðanin sem Saga lýsir undir lokar bókar og ekki síst jákvæðu tilfinningarnar sem
vakna hjá henni minna á áhrif hugleiðslu-aðferða sem eru stundaðar gagngert til að
auka samkennd einstaklings með öðrum. Boris Borneman og Tania Singer, „The
ReSource Training Protocol“, Compassion. Bridging Practice and Science, ritstjórar
Tania Singer og Matthias Bolz, Munich: Max Planck, 2013, bls. 452–465, hér bls.
459. Auður Jónsdóttir hefur greint frá því opinberlega að hugleiðsluæfingar sem
hún hafi stundað hafi haft svipuð áhrif á hana og störuflog sem hún fékk sem barn
svo þessi tengsl eru ekki úr lausu lofti gripin. Auður Jónsdóttir, „Auður Jónsdóttir.
Um heilann, opinn fræðslufundur um heilann í blíðu og stríðu“, https://vimeo.
com/148931471.
88 Auður Aðalsteinsdóttir hefur sagt að hið fullkomna stjórnleysi sem Saga finnur fyrir
í lok sögu virðist eiga að tákna dauða. Sjá „Hvorki stjórna né vera stjórnað“, bls.
94. Tekið skal fram að Auður Jónsdóttir hefur bent á að vísindamenn hafa dregið
fram líkindi með áhrifum störuflogs og eftirdauðareynslu. Auður Jónsdóttir, „Auður
Jónsdóttir. Um heilann, opinn fræðslufundur um heilann í blíðu og stríðu“, https://
vimeo.com/148931471.
89 Samber orð Auðar Jónsdóttur sem vísað var til í upphafi greinar.
90 Þessi grein er hluti af verkefninu Ímyndunaraflið (201196-0011) sem stutt er af
Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna. Ég þakka ónefndum ritrýnum og
Sigrúnu Margréti Guðmundsdóttur kærlega fyrir góðar og gagnlegar ábendingar
við skrif greinarinnar.