Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 27

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 27
VERA KnÚTSDóTTIR 32 félagið: „Svava Jakobsdóttir sagði að fjölskyldan væri hornsteinn samfélagsins og þegar maður fjallar um fjölskyldur þá er maður að endurspegla samfélagið. Ég hafði þetta svolítið að leiðarljósi og hugsaði um fjölskylduna sem mynd af sam- félaginu.“65 Þessi speglun fjölskyldunnar og samfélagsins er ítrekuð á nokkrum stöðum í verkinu. Til dæmis þegar Jenna útskýrir hvaða áhrif hrunið hafði á fjölskyldu þeirra: Amma þín átti ekkert þannig að hún tapaði heldur engu. Svo er hún ríkisstarfsmaður þannig að hún hélt vinnunni. Afi þinn og Petra töp- uðu engu vegna þess að langafi þinn varaði þau við svo að þau komu eignum sínum og sparnaði undan í tæka tíð. (49) ólík áhrif hrunsins á fjölskyldumeðlimi vitna um hvernig fjölskyldan virkar eins og þverskurður af samfélaginu þar sem hver og einn táknar ólíkan hóp íslensks hrunsamfélags sem hver upplifði atburðina með mismunandi hætti. Sumir, til dæmis almennir ríkisstarfsmenn eins og móðir Jennu, tóku lítinn þátt í góðærinu, og finna því ef til vill ekki beint fyrir áhrifum efnahagshrunsins á eigin fjár- hag, en auðvitað óbeint í gegnum verðbólgu og hækkun húsnæðislána, að ekki sé minnst á það félagslega ástand og andrúmsloft sem skapaðist á hruntímum. Aðrir hópar, eins og þeir sem tilheyra elítu, rétt eins og faðir Jennu sem er úr Hvítfeld fjölskyldunni, bjuggu svo vel að fá aðvaranir í aðdraganda hrunsins og gátu því gert ráðstafanir með fé og eignir. Í ljósi hugmynda um sjálfsmynd og ímyndarsköpun verður fjölskylda Jennu einnig að táknmynd fyrir íslenskt samfélag á hruntímum. föðurætt hennar, Hvítfeld ættin, er úr efri lögum samfélagsins og byggir ættarstolt sitt meðal ann- ars á þeirri goðsögn að afi Jennu hafi barist berum höndum við ísbjörn og drepið hann, og þess vegna hafi hann tekið upp nafnið „Hvítfeld“ sem endurspeglar einnig kynþátt fjölskyldunnar og litarhátt. Jenna segir að afi hennar hafi gengist upp í því að segja svipaðar glæsisögur um ættmenni sín með það að leiðarljósi að gera Jennu ljóst að hún sé af yfirburðafólki: „Afi segir margar ámóta sögur. Þær eru allar af ættmennum okkar, yfirburðum þeirra, hugdirfsku og myndugleika.“ (9) Jenna elst þar af leiðandi upp við strangt feðraveldi og við þá kröfu að hún lifi í samræmi við þá ímynd sem afinn hefur skapað fjölskyldunni. Þetta er sterka hlið fjölskyldunnar, sem virðist hafa yfirhöndina, en amma hennar er af öðrum stigum þjóðfélagsins og af fólki sem afinn kallar subbulýð: „Amma státar hins 65 „Búin að vera saman til æviloka“, Kristín Eiríksdóttir í viðtali við Fréttatímann, helgin 14. til 16. desember 2012, sótt 8. maí 2023 af https://timarit.is/page/5857621?iabr=- on#page/n51/mode/2up/search/Hv%C3%ADtfeld%20fj%C3%B6lskyldusaga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.