Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Side 75

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Side 75
MARTEINN KNARAN ÓMARSSON 80 lægt vald.34 Það er þó kannski ólíkt hvernig þessum gildum hefur verið miðlað í gegnum tíðina hér á landi en eðli málsins samkvæmt er fjölmiðlamenningin mun fábrotnari hér en til dæmis í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem hæsta tíðni raðmorða er og talsvert verið gert úr afbrotunum í slúðurblöðum og skáldskap. Fáir rótgrónir og sumpart íhaldssamir fjölmiðlar stýra að miklu leyti orðræðunni og hin svokallaða „gula pressa“ sem gerir sér jafnan mat úr skandölum og slúðri um frægt fólk og beitir til þess dramatísku og tilfinningalegu orðfæri í stað hlut- lausari umfjöllunar er lítt áberandi.35 Frægð í litlu landi felur líka ef til vill ekki í sér eins mikla virðisaukningu eða fjárhagslegan ávinning og í fyrrnefndum löndum. Um leið er bandarísk dægurmenning þó mjög áhrifamikil á Íslandi eins og annars staðar og ýmis viðhorf landsmanna mótuð af henni, ekki síst varð- andi raðmorðingja sem stundum eru sagðir „eins bandarískir og eplapæ“.36 Þá sækja líka æ fleiri fréttir, fróðleik og afþreyingu til erlendra miðla, einkum þeirra bandarísku, og ljóst að hver og einn byggir sjálfsmynd sína úr ólíkasta efnivið í al- þjóðavæddum samtímanum. Það menningarlega samhengi sem Haggerty ræðir um og elur af sér raðmorðingja er Íslendingum því vel aðgengilegt nú á dögum um leið og hin félagslegu skilyrði eru sífellt að breytast í landinu. Líkt og Katrín Jakobsdóttir, núverandi forsætisráðherra og íslenskufræðingur, kemur inn á í bók sinni Glæpurinn sem ekki fannst. Saga og þróun íslenskra glæpasagna (2001) var hinn smái og um margt einsleiti félagslegi veruleiki á Íslandi lengi ákveðin fyrirstaða fyrir bókmenntir um glæpi. Ekki síst eiga orð hennar vel við glæpasögur sem er sú bókmenntagrein ásamt hrollvekjunni þar sem raðmorð- ingjar koma helst fyrir. Lesendur hváðu gjarnan þegar íslenska glæpasagan barst í tal skrifar Katrín og þótti hún beinlínis óeðlileg bókmennategund á Íslandi. Hér vantaði félagslega samhengið og þá umgjörð sem greinin kallaði eftir, svo sem skuggahverfi stórborga eða ensk óðalssetur.37 Í inngangi sínum vitnar Katrín í Dauðarósir (1998) eftir Arnald Indriðason, eins af frumkvöðlum íslenskra glæpa- sagna, þar sem þetta er einmitt rætt í stuttri senu og spurt hvers vegna Íslending- ar skrifi ekki spennubókmenntir, þeir skrifi jú allar aðrar tegundir sagna. Komast persónurnar að þeirri niðurstöðu að glæpaflóran sé ekki nógu spennandi hér á 34 Sjá til dæmis Julie B. Wiest, Creating Cultural Monsters. Serial Murder in America, bls. 3; og Jane Caputi, The Age of Sex Crime, London: The Woman´s Press, 1988, bls. 4. 35 Guðni Elísson bókmenntafræðingur hefur að vísu fjallað um orðræðuna í DV í tengslum við gotneska heimsýn. Sjá Guðni Elísson, „Dauðinn á forsíðunni. DV og gotnesk heim- sýn“, Skírnir 1/2006, bls. 15–132. 36 David Schmid, Natural Born Celebrities. Serial Killers in American Culture, bls. 25. Tilvitnun hljómar upprunalega á þessa leið: „Serial killers are as American as apple pie.“ 37 Katrín Jakobsdóttir, Glæpurinn sem ekki fannst. Saga og þróun íslenskra glæpasagna, Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, 2001, bls. 9.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.