Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 128

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 128
„DRAUgAR Í SKElINNI“? 133 og hvers vegna við tökum svo alvarlega muninn á eftirlíkingu eða fölsunum og svo því sem er upprunalegt og ekta. Hvað er til dæmis það sem skilur listaverk frá öðrum verkum?9 Bloom leggur einnig áherslu á að eðlislæg tvíhyggja okkar hafi áhrif á tilfinningar okkar til annars fólks, siðferðilegar skynjanir okkar og skilning, meðal annars hvernig við gerum mun á réttu og röngu og jafnframt viðhorf okkar til dauðans. Paul Bloom beinir athygli sinni að verundarhyggju eða eðlishyggju (e. essenti- alism) í bók sinni How Pleasure Works sen kom út 2010 og fjallar um leyndardóma unaðarins eða lystisemdanna (e. pleasures). Þessi vellíðan er til að mynda bundin listum, tónlist, bókmenntum, masókisma og trúarbrögðum.10 En þessi tilfinning sem tengist til dæmis mat og kynlífi er ekki einvörðu bundin manninum því að hún einkennir margar aðrar lífverur. Bloom telur af þessum sökum að mann- legur unaður eigi sér ekki rætur í náttúruvali eða öðru slíku þróunaferli heldur sé afurð menningar okkar. Í hugrænum fræðum tengjast spurningar um lystisemdirnar ýmsu er varðar verundarhyggju, svo sem þeirri trú okkar að hlutir hafi í sér ósýnilegan kjarna sem geri þá að því sem þeir eru. Bloom telur að við höfum þróað með okkur eðlishyggju til þess að átta okkur á heiminum en hún hafi ýtt hvötum okkar og löngunum í áttir sem hafa ekkert að gera með það að lifa af eða fjölga okkur. Íþróttir, listir, tónlist, leiklist, bókmenntir og trúarbrögð séu meðal þeirra þátta sem geri okkur mannleg og við getum ekki skilið neitt af þessu án þess að átta okkur á því hvernig unaður virkar.11 Í bókinni The Sweet Spot sem kom út 2013 heldur Bloom áfram á sömu braut en beinir nú athygli sinni fremur að sársauka og þjáningu, og veltir því fyrir sér hvernig reynsla af tilfinningum, eins og ótta og sorg, veiti okkur ánægju eða unað. Rétt tegund af sársauka geti skapað forsendur fyrir aukinni ánægju síðar meir; það sé gjaldið sem við greiðum fyrir verðlaun í framtíðinni.12 Kvöl geti dregið athygli okkar frá því sem við örvæntum yfir og jafnvel aðstoðað okkur við að víkka út sjálfið. Að velja það að þjást getur þjónað félagslegum mark- miðum, það getur afhjúpað hversu sterk við erum og/eða á mótsagnakenndan hátt, verið ákall eftir hjálp. Óþægilegar tilfinningar líkt og ótti og sorg geta verið notaðar í leik, fantasíum og skemmtun, líkt og sjá má í ýmiss konar sögum og 9 Sama heimild, 32%. 10 Paul Bloom, How Pleasure Works. The New Science of Why We Like What We Like, New York/ London: W.W. Norton & Company, 2010, epub, 1%. 11 Sama heimild, 3%. 12 Paul Bloom, The Sweet Spot, Suffering, Pleasure and the Key to a Good Life, london: The Bodley Head, 2021, bls. xii.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.