Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 135

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Page 135
PAUl BlOOM 140 að beita konu kynferðislegu ofbeldi á meðan hún er meðvitundarlaus. En hann finnur ekki fyrir siðferðilegu tilfinningunum sem tengjast slíkum athöfnum, svo að mat hans á réttu og röngu líkist því þegar einhver sem er blindur frá fæðingu staðhæfir að grasið sé „grænt“ og himininn „blár“ – sem er rétt þekking út frá staðreyndum en án þeirrar venjubundnu reynslu sem fylgir henni. Ímyndaðu þér að reyna að sannfæra siðblindingjann þinn um að vera góður við annað fólk. Þú gætir sagt við hann að hann þurfi að bæla niður eigingjarnar hvatir í þágu annarra. Þú gætir kastað að honum dálítilli heimspeki, kynnt hann fyrir heimpekingum sem aðhyllast þau viðhorf nytjastefnunnar að athafnir okkar eigi að hámarka hamingju mannsins í heild sinni. Þú gætir útskýrt skil- yrðislausa skylduboð (e. catergorical imperative) Immanuels Kant eða fávísifeld (e. veil of ignorance) Johns Rawl eða hlutlausan áhorfanda (e. impartial spectator) Adams Smith. Þú gætir prófað aðferð sem foreldrar beita oft á börnin sín og spurt hann hvernig honum liði ef einhver kæmi á sama hátt fram við hann og hann kemur fram við aðra.4 Hann gæti brugðist við öllu þessu þannig að honum væri einfaldlega sama um það hvort hamingja annarra aukist og hafi engan áhuga á skilyrðislausu skylduboðorði eða öðru slíku. Hann geri sér grein fyrir hvernig leggja megi rök- lega að jöfnu það að hann skaði einstakling eða einstaklingurinn skaði hann, hann sé ekki fáviti þegar öllu er á botninn hvolft. En þó hvetur ekkert af þessu hann til þess að koma fram við fólk af vinsemd. Sannir siðblindingjar svara á svipaðan hátt. Sálfræðingurinn William Da- mon segir frá viðtali sem birtist í New York Times við þrettán ára árásarræningja (e. mugger) sem veittist grimmilega að eldra fólki, þar á meðal blindri konu. Hann sýndi enga iðrun vegna gjörða sinna og sagði að blint fólk væri skynsamlegt skotmark vegna þess að það myndi ekki geta borið kennsl á hann síðar.5 Þegar árásarmaðurinn var spurður um sársaukann sem hann hafði valdið konunni, lýsti fréttamaðurinn því á þessa leið: „Drengurinn var hissa á spurningunni og svaraði svo: „Af hverju ætti mér ekki að vera sama? Ég er ekki hún“. Ted Bundy var undrandi á öllu fjaðrafokinu vegna morðanna sem hann hafði framið: „Ég meina, það er til svo margt fólk.“6 Raðmorðinginn gary gilmore tók í stuttu máli saman viðhorf þeirra sem hafa ekki siðferðilegar tilfinningar. „Ég var allt- af fær um að myrða … Ég get algjörlega losað mig undan því að finna fyrir 4 Martin L. Hoffman, Empathy and Moral Development. Implications for Caring and Justice, New York: Cambridge University Press, 2000. 5 William Damon, The Social World of the Child, San Francisco: Jossey-Bass, 1977, bls. 18. 6 Tilvitnunin er sótt í Paul Bloom, Descartes’ Baby: How the Science of Child Development Expla- ins What Makes Us Human, New York: Basic Books, 2004.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.