Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2023, Side 145
PAUl BlOOM
150
Jafnvel þó að samkennd megi ekki leggja að jöfnu við siðferði og stangist stund-
um á við það, er hún samt sem áður nauðsynleg. Það væri ekkert siðferði ef
okkur þætti ekki vænt um aðra.
Frá fyrstu augnablikum lífs okkar tengjumst við öðrum. Ekkert barn er ey-
land. Jafnvel nýburar bregðast við svipbrigðum fólks.32 Ef rannsakandi rekur
út úr sér tunguna í átt að barni, þá hefur barnið tilhneigingu til þess að svara
í sömu mynt. En vegna þess að barnið hefur aldrei litið í spegil, þá hlýtur það
ósjálfrátt að vita að tunga fullorðinnar manneskju samsvarar hlutnum í þess
eigin munni sem það hefur aldrei séð. Þessi hermihvöt gæti verið til staðar til
þess að skapa tengsl á milli barnsins og fullorðna fólksins í nánasta umhverfi þess
svo að tilfinningar þeirra vefjist saman. Svo sannarlega spegla foreldrar og börn
oft ómeðvitað svipbrigði hvers annars.33
Börn bregðast einnig við sársauka annarra. Munið hvernig ungi William
Darwin sýndi „hluttekningu“ sex mánaða gamall og setti upp „dapurlegan svip“
þegar barnfóstran þóttist gráta. Jafnvel nokkrum dögum eftir fæðingu finnst
börnum óþægilegt að heyra grát og þau hafa tilhneigingu til að fara að gráta
sjálf.34 Þetta eru ekki fávís viðbrögð við hávaða. Börn gráta meira þegar þau
heyra grát annars barns heldur en þeirra eigin og þau gráta ekki jafn mikið og
þegar þau heyra tölvugerð hljóð í sama hljóðstyrk eða þegar þau heyra grát úr
ungum simpansa.35 Öðrum dýrum finnst það einnig óþægilegt þegar aðrir úr
tegund þeirra þjást. Svangir rhesusapar forðast það að toga í handfang til að
fá mat, ef það verður til þess að aðrir apar fá í sig sársaukafullt raflost.36 Rottur
munu ýta niður stöng til þess að lækka aðra rottu sem hangir uppi í loftinu eða
til þess að losa rottu sem er föst í tanki fullum af vatni.37 Og líkt og apar þá hætta
32 Andrew N. Meltzoff og M. Keith Moore, „Imitations of Facial and Manual Gestures by
Human Neonates“, Science 198/1977, bls. 75–78.
33 Colwyn Trevarthen, „The Concept and Foundations of Infant Intersubjectivity“, Intersu-
bjective Communication and Emotion in Early Ontogeny, ritstjóri Stein Bråten, New York: Cam-
bridge University Press, 1998, bls. 15–46.
34 George A. Sagi og Martin L. Hoffman, „Empathic Distress in the Newborn“, Develop-
mental Psychology 12/1976, bls. 175–176.
35 Grace. B. Martin og Russell D. Clark, „Distress Crying in Infants. Species and Peer Spe-
cificity“, Developmental Psychology 18/1982, bls. 3–9; Marco Dondi, Francesca Simion og
Giovanna Caltran, „Can Newborns Discriminate Between Their Own Cry and the Cry
of Another Newborn Infant?“, Developmental Psychology 35/1999, bls. 418–426.
36 Stanley Wechkin, Jules H. Masserman, og William Terris Jr., „Shock to a Conspecific
as an Aversive Stimulus“, Psychonomic Science 1/1964, bls. 47–48; Jules. H. Masserman,
Stanley Wechkin og William Terris, „‘Altruistic’ Behavior in Rhesus Monkeys“, American
Journal of Psychiatry 121/1964, bls. 584–585.
37 george E. Rice og Priscilla gainer, „„Altruism“ in the Albino Rat“, Journal of Comparative