Úrval - 01.06.1947, Page 35
„ÞAÐ ERU EKKI TIL, VOND BÖRN'
33
þá umhyggju, sem foreldramir
hafa ekki tíma til að lát því í té.
Höfundarnir leggja sérstaka
áherzlu á þýðingu leikja. Heil-
brigð börn hafa stöðuga at-
hafnaþörf, en umhverfið getur
haft þau áhrif að þessi þörf
sljóvgist. Oft er sagt að börn-
in séu löt af því að áhugi þeirra
er á alit öðru sviðienforeldram-
ir óska. En það sem gefur leikn-
um gildi er einmitt, að barnið
hefir sjálft valið hann. Leikur-
inn svarar til vinnu hinna full-
orðnu, en því miður er sú skoðun
allútbreidd, að það starf sem
innt er af hendi með ógeði hafi
mest gildi. Auðvitað verðum við
öll öðru hvoru að vinna verk,
sem við kærum okkur ekki um,
en það er ill nauðsyn. Það er
staðreynd, að verk sem unnið er
af áhuga er ekki eins þreytandi,
og því betur sem okkur tekst
að gera starf barnsins að leik,
þeim mun meira gagn hefir það
af því. Fullorðið fólk getur nokk-
urn veginn sigrast á óbeit á ein-
hverju sérstöku verki, ef það
nær með því settu marki. En
barnið hefir ekki þessa fram-
sýni, það lifir aðeins fyrir líð-
andi stund og vill helzt sjá ár-
angur af fyrirhöfn sinni strax.
Og barnið skilur ekki nauðsyn-
ina á mörgu því sem við kref j-
umst af því. Tólf ára telpa á
móður, sem allan daginn er
eirðarlaus og önnum kafinn.
Hún getur ekki verið kyrr eitt
andartak. Hún finnur alltaf eitt-
hvað sem þarf að gera. Auðvit-
að er þetta sjúklegt eirðarleysi,
en af því að hún getur aldrei
unnt sér sjálf hvíldar, þolir hún
heldur ekki að dóttirin sitji auð-
urn höndum andartak. Ef dóttir-
in situr t. d. við lestur, heimtar
hún strax að hún ,,taki sér eitt-
hvað fyrir hendur." Og þannig
er það á hverjum degi, og afleið-
ingin er sú, að barnið verður
dauft og draumlynt og á erfitt
með að einbeita sér. Það
á við um letina eins og marga
aðra eiginleika, sem aldir eru
upp í barninu, að finna verður
orsökina fyrir hinni þverrandi
starfslöngun.
Weill, sem stundum getur
verið háðslegur, lét eitt sinn þau
orð falla, að við dáumst mest að
börnum sem við getum horft á
án þess að heyrist í þeim. Höf-
undar bókarinnar „Det finns
inga elaka barn“ eru eindregnir
formælendur frjálslynds upp-
eldis, sem skapar frjáls, sjálf-
stæð og lífsglöð böm — jafnvel
þó að heyrist í þeim!