Úrval - 01.06.1947, Side 37
NEGRAVANDAMÁLIÐ I LJÓSI MANNFRÆÐINNAR
35
tíma var dánartala hvítra barna
aðeins 43 af 1000. Sennilega er
munurinn enn meiri, því að
dauði negrabarnanna mun ekki
alltaf vera tilkynntur yfirvöld-
unum. Dánartala fullorðinna
negra er einnig hærri en hvítra
manna. Meðalaldur negra er
48,5 ár, en hvítra manna 60,9.
Orsök þessa mismunar er
bæði félagsleg og líffræðileg.
Sérkenni í líkamsbyggingu
negranna urðu til og þróuðust í
hitabeltinu. Þeir urðu svartir á
hörund til að geta varizt hinum
sterku áhrifum hitabeltissólar-
innar, og nasir þeirra urðu víð-
ar vegna hins hlýja og raka
andrúmslofts. I hinu tempraða
loftslagi Bandaríkjanna verða
þessi líkamseinkenni að ágöllum.
Svarti hörundsliturinn útilokar
hin heilsusamlegu áhrif sólar-
ljóssins, og hinar víðu nasir
opna greiðan aðgang hvers kon-
ar sjúkdómum í öndunarfærun-
um, svo sem berklum, lungna-
bólgu, inflúensu og kíghósta.
Dauðsföll meðal negranna af
völdum þessara sjúkdóma voru
364 á hverja 100 000 íbúa árið
1940, en meðal hvítra rnanna
var þessi hlutfallstala þrefalt
lægri.
Þjóðfélagsleg kjör negranna
eiga líka mikinn þátt í hinu lé-
lega heilsufari þeirra. Þeir búa
flestir í fátækrahverfum stór-
borganna, þar sem hreinlæti er
mest ábótavant og læknishálp
algerlega ófullnægjandi.
Síðan um 1860 hefir verið að
heita má stöðugur straumur
negra frá Suðurríkjunum til
Norður- og Vesturríkjanna.
Mestur var þessi straumur á
stríðsárunum, og þá nálega
eingöngu til stórborganna. Af-
leiðing þessara flutninga er
fækkun barnsfæðinga, því að
viðkoman er miklu meiri meðal
landbúnaðarverkamannanna en
iðnaðarverkamannanna í borg-
unum.
Því meira sem negrarnir
dreifast um landið, því minni
hætta verður á kynþáttaofsókn-
um, þeir verða þá óvíða svo f jöl-
mennir, að áhrifa þeirra gæti
mikils í stjórnmálum eða á
vinnumarkaðinum.
En rökin, sem einkum hníga
að því áliti, að negrarnir muni
hverfa sem greinilegur minni-
hlutakynþáttur, eru þau, að þeir
verða Ijósari á hörund með
hverri kynslóð. Þessi breyting
er ekki fyrir áhrif loftlagsins
— líffræðileg einkenni eru ár-
þúsundir að þróast — heldur