Úrval - 01.06.1947, Qupperneq 57
LISTAVERKAFÖLSUN
55
átti líka bezt við mig. Og líf
hans var að mestu hulið leynd,
sem gerði það að verkum, að
ekki mundi vekja tortryggni, þó
að áður óþekkt málverk eftir
hann kæmi fram á sjónarsviðið.
Efni til myndarinnar yrði að
vera ósvikið. Sérfræðingar
myndu reyna áhrif vínanda á
litina og efnagreina þá. Þeir
myndu nota röntgengeisla og
innrauða geisla til að mynda
léreftið, og kvartsljós til að lýsa
í gegnum yztu lögin. Van Meeg-
eren gerði ráð fyrir öllu þessu.
Hann las allt sem hann komst
yfir um Vermeer og varð þess
vísari, að hann hafði notað trjá-
kvoðu sem gulan lit; lazúrstein
sem bláan lit, og hvítt zink í
stað blýs. Meegeren varð að
borga 13000 krónur fyrir túpu
af hreinu lazúrsteinsdufti. ,,Erf-
iðast var að fá hinar réttu olíur
í litina,“ segir hann. „Nútíma-
málarar nota fræolíu úr hör-
fræi, en hana gat ég ekki notað,
því að þá harðnar málningin
aldrei almennilega. Ég var þó
svo heppinn að finna í gömlu
handriti lýsingu á þeirri olíu,
sem Vermeer notaði. Ég notaði
hana, og við það stóðst málverk
mitt öll vínandapróf.“
Van Meegeren valdi sér að
efni Krist, þar sem hann er að
brjóta brauðið handa lærisvein-
um sínum í Emaus. Hann vann
að myndinni af mikilli vand-
virkni, dag eftir dag í sjö mán-
uði. Jafnvel konan hans vissi
ekki, hvað fyrir honum vakti.
Þegar henni var lokið, fór hann
yfir hana aftur, depil fyrir depil.
Ekkert vantaði — ekki einu
sinni ellisprungurnar í yfirborð-
ið. Hann hafði orðið þess vís, að
í myndir, sem málaðar voru á
árunum áður en Vermeer kom
fram á sjónarsviðið, komu stór-
ar sprungur, en í myndir Ver-
meers komu minni sprungur,
sem mynduðu líkt og keðju.
Meegeren rispaði af mikilli
vandvirkni þannig sprungur í
málverk sitt, og hitaði það síð-
an í bakaraofni, og líktust þær
á eftir nákvæmlega sprungunum
í verkum meistarans.
IJtfrá þekkingu sinni á lífi
Vermeers bjó hann til söguna
um ,,fund“ sinn á málverkinu.
Hann vissi, að ítalskir málarar
höfðu lært hjá Vermeer. Italirn-
ir höfðu gert mynd af Kristi í
Emaus. Þeir höfðu farið með
myndir sínar til ítalíu. Trúlegt
var, að Vermeer hefði líka gert
mynd af Kristi í Emaus, og
sennilegt var, að hann hafi ein-