Úrval - 01.06.1947, Síða 61
VANSKAPNINGAR KJARNORKUALDARINNAR
59
mátti segja, að þær væru til
bóta.
Samtímis þessum tilraunum
höfðu erfðafræðingar komizt
að þeirri niðurstöðu, að arf-
gengi í mönnum hlýddi ná-
kvæmlega sömu lögmálum og í
flugum. Þeir voru því ekki í
neinum vafa um, að næstum öll
þau afbrigði, sem tekizt hafði
að skapa með röntgengeislum í
flugunum, mundi á sama hátt
vera hægt að skapa í mönnum.
Börn gætu fæðzt með stýfða
handleggi eða fætur, hálfblind
eða alblind; börn með afbrigði-
legan augnalit, aukalimi og ótal
öðrum sérkennum. En hvern
gat dreymt um, að slík tilraun
yrði nokkurn tíma gerð — að
tugþúsundir manna yrðu ofur-
seldir slíkum geislaverkunum ?
En það var einmitt þetta, sem
skeði, þegar kjarnorkusprengj-
unum var varpað á japönsku
borgirnar.
Ástæðan til þess að við vitum
enn aðeins lítið um árangurinn
af þessum „tilraunum“ er sú,
að áhrifanna gætir ekki í þeim
einstaklingum, sem verða fyrir
geislunum; það er í æxlunar-
frumunum (eggi konunnar og
sæðisfrumu karlmannsins), sem
breytingin á sér stað. Og hún
verður ekki sýnileg fyrr en í af-
kvæminu, eða að öllum líkind-
um ekki fyrr en í öðrum lið, því
að það er svo um flestar þessar
stökkbreytingar, að þær koma
ekki fram nema afkomendur
þeirra sem erfðu stökkbreyt-
ingarnar eigi börn saman.
Örsjaldan eru stökkbreyting-
arnar til bóta; en miklu oftar
eru þær til tjóns. Auk þess sem
ósennilegt er, að nokkuð það
sem óeðlilegt er talið í útliti
manna verði álitið æskilegt. Það
gæti til dæmis verið gagnlegt
að hafa þrjár hendur — en
myndi nokkur æskja þess?
Og nú komum við að geislun-
um. Þrennskonar geislar mynd-
ast við atómsprengingar: alfa-
geislar, betageislar og gamma-
geislar. Bein geislun kemur
einkum frá gammageislunum
(sem eru sama og röntgengeisl-
ar); það voru þeir, sem íbúar
Hiroshima og Nagasaki urðu
fyrir.
Alfa- og betageislarnir fara
miklu hægar. Þeir stafa frá
ögnum, sem magnast hafa geisl-
um, og þessar agnir verður að
öllum jafnaði að gleypa, ef
geislarnir eiga að geta gert
tjón. En til lengdar eru þeir enn
hættulegri en gammageislarn-
8*