Úrval - 01.06.1947, Síða 63
VANSKAPNINGAR KJARNORKUALDARINNAR
61
aði barna þeirra voru fábjánar,
með óeðlilega lítil höfuð.
Önnur hættuleg afleiðing
geislunar er ófrjósemi. Dr.
Charles E. Dunlap segir í tíma-
ritinu „Atvinnusjúköómar“:
„Eggjakerfin og eistun eru
mjög viðkvæm fyrir rönt-
gengeislum eða radium, og
getur einn stór skammtur eða
ítrekaðir smærri skammtar
hæglega valdið ófrjósemi.“
Með hliðsjón af þessari hættu
eru gerðar varúðarráðstafanir
allsstaðar þar sem notaðir eru
röntgengeislar eða geislamögn-
uð efni. Læknar nota t. d. blý-
blandaðar gúmmísvuntur, eða
skýla sér bak við blýklædda
glerskerma, þegar þeir nota
röntgentæki.
Eigi að síður er ófrjósemi
einn af tíðustu atvinnusjúk-
dómum meðal þeirra, sem vinna
við slík tæki. Athuganir, sem
gerðar voru fyrir nokkrum ár-
um, sýndu, að 377 röntgen-
starfsmönnum voru 90 ófrjóir.
Hversu stórtæk kjarnorku-
sprengjan getur verið í þessu
efni er þegar orðið að nokkru
Ijóst af fyrstu læknaskýrslum
frá Hiroshima og Nagasaki.
En ef hugsað er lengra fram,
er hættan af ófrjóseminni ekki
nærri eins uggvænleg fyrir
mannkynið og breytingarnar á
æxlunarfrumunum, sem berast
myndu frá kynslóð til kynslóð-
ar. Að ekki er neinn vafi á að
svo geti farið er fengin sönnun
fyrir í bráðabirgðaskýrslum
vísindamannanna, sem voru við
tilraunirnar á Bikiniey. Ávaxta-
flugur, sem komið var fyrir á
skipunum við eyna, hafa nú lif-
að í margar kynslóðir (þær eru
aðeins tvær vikur að ná fullum
þroska), og afkomendur þeirra
bera mörg hin sömu vanskapn-
aðareinkenni, sem áður hafa
komið fram við röntgengeislun
á flugum.
Enn er ein staðreynd, sem
ekki verður komizt hjá að
horfast í augu við. Jafnvel þó
að aldrei verði varpað fleiri
kjarnorkusprengjum, er hætt-
an af friðsamlegri notkun
kjarnorkunnar eftir, þangað til
fundizt hafa öruggar varúðar-
ráðstafanir. í kjölfar hinna
glæstu vona, sem menn gerðu
sér fyrst um notkun kjarnork-
unnar, hafa komið aðvörunar-
orð, og má þar til nefna rit-
stjórnargrein í blaði ameríska
læknafélagsins, þar sem vitnað
er í skýrslu dr. W. F. Bale:
„Bale varpar fram þeirri