Úrval - 01.06.1947, Page 72
70
ÚRVAL
vini sína beita ofbeldi. Hann
getur falsað kosningaúrslit,
tryggt sigur flokks síns og
hegnt sérhverjum, sem gagn-
rýnir aðferðir þær, er hann not-
aði til að fá sigur. f orði kveðnu
er hlutverk lögreglunnar að
neyða fólk til að hlýða lögunum,
en í mörgum löndum er hún
sjálf hafin yfir lögin. Sérhvert
lýðræðisríki, hvort sem það er
kapítalistiskt eða sósíaliskt,
verður að finna aðferð, sem
tryggir það, að lögreglan hlýði
lögunum.
Ef frá eru talin hrein lög-
reglumál, virðist það óréttlátt,
að maður, sem sakaður er um
glæp, þurfi undir högg að
sækja hjá ríkisvaldi, sem notar
öll hjálpartæki til að finna
sannanir fyrir sekt hans, en
sjálfur verði hann að safna öll-
um gögnum, sem sannað gætu
sakleysi hans, á eigin kostnað og
án aðstoðar nokkurrar opin-
berrar stofnunar. Þó að við
segjum, að það sé mikiívægara,
að saklaus maður verði sýknað-
ur, en að sekur maður verði
dæmdur, breytum við raunveru-
lega þveröfugt. Ef maður er
ranglega ákærður um glæp og
margar líkur eru á móti honum,
verður hann ef til vill að nota
stórfé til að sanna sakleysi sitt,
en peningar skattgreiðenda eru
notaðir til að sanna sekt hans.
Við höfum einblínt á óhlut-
drægni dómstólanna, og okkur
hefir sézt yfir mikilvægi þess,
að óhlutdrægni sé gætt í undir-
búningsrannsókn lögreglunnar.
Þetta er ein sönnun þess, hve
ófullnægjandi eru orðnar gaml-
ar öryggisráðstafanir vegna
bættra starfsaðferða þeirra
stofnana, sem vinna í þágu
ríkisvaldsins.
Skilningurinn á gildi einstak-
lingsins og viljinn til að skapa
örlög sín sjálfur er hvorttveggja
ómetanlegt í heilbrigðu þjóðfé-
lagi. Því verður ekki fullnægt
með því að veita einstaklingn-
um fjórða hvert ár tækifæri til
að kjósa stjórn, sem á stjórnar-
árum sínum verður að gera út
um fjölda mála, sem enginn
hugsaði um, þegar kosningar
fóru fram. Vald kjósandans er
ekki aðeins takmarkað og f jar-
lægt, honum finnst það einnig
• óendanlega lítið, þegar hann
hugsar um alla hina kjósend-
urna. Ef frambjóðandi hans nær
kosningu með miklum meiri-
hluta, hugsar hann: „Það hefði
ekkert gert til, þó að ég hefði
setið heima.“ Ef andstæðingur