Úrval - 01.06.1947, Blaðsíða 81
ALÞJÓÐLEGT VANDAMÁL
gluggann á hans eigin svefn-
klefa!“
Og — „Frakkar eru dónar og
ruddar. Hefi ég nokkurn tíma
sagt þér frá ensku stúlkunum
tveim, sem var fleygt af lestinni,
svo að þær urðu að ganga alla
leið til Cannes?“ O. s. frv.
Við Rachel fórum inn í matsal-
inn. Ef til vill hefir kaffið verið
óvenju gott þennan morgun,
kaffibrauðið óvenju Ijúffengt.
Mér tók að renna reiðin. Bros-
legu hliðar atburðarins birtu mér
hann í nýju ljósi. Ég mundi nú
að það hafði verið skemmtileg-
ur glettnisglampi í augum
Frakkans. Hann hafði bersýni-
lega yndi af orðasennum, og
sama var að segja um mig. Allt
í einu yfirféll mig sú hræðilega
hugsun, að ef til vill hafi Frakk-
inn verið í sínum fulla rétti. Gat
ekki verið, að einkaréttur okkar
til klefans félli úr gildi við
fyrstu dagskímu morgunsins ?
Vafalaust var það það, sem
þjónninn hafði verið að reyna
að skýra fyrir mér.
Ég spratt á fætur og tróð mér
gegnum þvöguna í ganginum
þangað til ég rakst á fyrrver-
andi andstæðing minn. Fjand-
samleg augu fólksins hvíldu á
mér, og Frakkinn sneri sér að
79>
mér, reiðubúinn að mæta nýrri
árás. Ég rétti honum höndina.
„Monsieur, je regrette infini-
ment. Mér þykir mikið fyrir
þessu. Sökin var mín. Ég bið yð-
ur margfaldlega afsökunar.“
Ah alors! Hvílíkar sættir!
— Hvílík sameining tveggja
hjartna, sem forherzt höfðu um
stund hvort gagnvart öðru af
heimskulegum misskilningi! —
Frakkinn faðmaði mig og þrýsti
mér að brjósti sér. Fyrrverandi
andstæðingar okkar flykktust
umhverfis okkur. Tappi small úr
vínflösku einhvers staðar í
hópnum, og flaskan gekk frá
munni til munns án nokkurra
hreinlætisráðstafana. — Við
drukkum heill hvers annars, og
síðan heill föðurlanda okkar.
Þegar við Rachel stigum af
lestinni, báru margar greiðfús-
ar hendur farangur okkar út á
stöðina. Allir vagngluggar voru
fullir af brosandi, vingjarnleg-
um andlitum. Frakkinn sendi
mér koss á fingri og deplaði
augunum kankvíslega til mín.
„Ó, ungfrú, ef ég væri ekki
giftur . . .“
Það síðasta sem ég sá til
hans, var hatturinn, sem hann
veifaði til mín af gallverskri
kurteisi í kveðju skyni.