Úrval - 01.06.1947, Side 87
ER OFDRYKKJA ÓLÆKNANDI ?
85
jafnaði fyrr eða síðar að fyrri
iðju.
Það eru þrjár aðferðir notað-
ar við lækningu á ofdrykkju.
Við skulum athuga þær hverja
fyrir sig, til að komast að raun
um hvers vegna þær reynast,
þegar bezt lætur, aðeins stund-
arlækning.
1. Samhjálp drykkjumanna.1)
Þetta er félagsskapur fyrrver-
andi drykkjumanna, sem reyna
að hjálpa ofdrykkjumönnum.
Þeir þekkja vandamál of-
drykkjumannanna betur en aðr-
ir leikmenn — jafnvel betur en
flestir læknar. Herbert Yahraes
segir um þá í bók sinni „Of-
drykkjan er sjúkdómur“: „Þeir
geta hjálpað ofdrykkjumannin-
um, af því að þeir vita hvernig
honum er innanbrjósts, áður en
hann lendir á túr, hvers konar
afsakanir hann ber fram, og um
óvild hans í garð þeirra sem
vilja reyna að hjálpa honum.
Þeir bera traust til hans, jafn-
vel þó að hann lendi á túr eftir
að hann hefir ákveðið að bragða
aldrei áfengi framar.“
Félagsskapurinn telur, að 75
af hundraði þeirra ofdrykkju-
manna, sem raunverulega hafa
1) Sjá „Samhjálp drykkjumanna"
í 1. hefti Úrvals, 4. árg.
viljað hætta að drekka, hafi
læknast með hjálp félaga sinna.
Gallinn er aðeins sá, að einungis
lítill hluti allra ofdrykkjumanna
vill raunverulega hætta að
drekka.
Samhjálp drykk jumanna reyn-
ir að hjálpa ofdrykkjumönnum
á félagslegum grundvelli: með
gagnkvæmri vináttu manna sem
eiga við sama vandamál að
stríða. Á samkomum þeirra er
ekki veitt áfengi — aðeins kaffi
og gosdrykkir. Þeir vilja ekki
eiga neitt á hættu um það að
gikkurinn smelli.
En félagsskapurinn getur
ekkicáðið öllurn ytri aðstæðum.
Einn félagsmanna, sem verið
hafði reglusamur um lengri
tíma, slasaðist á baki og var
fluttur á spítala. Hjúkrunar-
konan þvoði bakið á honum úr
vínanda, lyktin af vínandanum
losaði um hinar innibyrgðu
langanir hans, og hann lenti á
túr. En samhjálpin varð honum
samt að liði, því að félögum
hans tókst að endurreisa hann
að nýju.
2. Sálrœn lœkning.1) Þessi
aðferð stefnir að því að gera of-
drykkjumanninum Ijóst, að hið
1) Sjá „Ofdrykkja og eiturlyfja-
nautn“ í 2. hefti TJrvals, 5. árg.