Úrval - 01.06.1947, Síða 94
92
ÚRVAL,
„Það liggja ekki fyrir neinar
pantanir þann dag, sagði hún.
„Það hefir meira að segja ekk-
ert verið pantað eftir 21. júní.“
„Þakka yður fyrir,“ sagði ég
og kvaddi. Ég hringdi í fimm
önnur sjúkrahús. Því næst hélt
ég til J. C. Pogey, og gekk rak-
leitt inn í hið allra helgasta. Ég
hlassaðist ofan í leðurstól við
skrifborðið og reyndi að kveikja
mér í sígarettu. En ég var svo
skjálfhentur, að Pogey varð
að halda á eldspítumii fyrir mig.
„Þetta er ef til vill ægilegasti
viðburður, sem komið hefir fyr-
ir!“
„Hvað?“
„Engin börn. Engin börn eftir
21. júní.“ J. C. Pogey er maður
f jörgamall, þolinmóður og vitur
vel. Hann bað mig að vera róleg-
an og segja sér allt af létta. Þeg-
ar ég hafði gert það, sagði
hann: „Þetta getur að vísu verið
skelfilegasti atburður, sem hent
hefir mannkjmið til þessa. En
við verðum að rannsaka allt
gaumgæfilega og forðast allar
uppljóstranir fyrst um sinn.“
Ég hringdi í sjúkrahús í tutt-
ugu stórborgum, og síðan leitaði
ég mér upplýsinga í minni bæj-
um. Allstaðar var sama svarið:
Engar fæðingar í júlímánuði.
„Kannske þetta ástand sé að-
eins bundið við Bandaríkin,“
sagði ég. „Reyndu Kanada,
Mexikó og Brazilíu," skipaði
Pogey. —
Loks komumst við að raun
um, að þetta sannaði ekki neitt
— við yrðum að tala við fæðing-
arsérfræðinga, þeim væri kunn-
ugast um þetta mál.
Ég þekkti aðeins einn fæðing-
arsérfræðing, Maríu Ostenheim-
er, vinkonu Marge. Ég hringdi
til hennar og sagði: „María, ég
hefi dálítið að segja þér, en það
er algert trúnaðarmál."
„Ef þið eigið von á barni,“
svaraði hún, „er það mér bæði
gleði og undrunarefni, því að
allir eru hættir að eiga börn.
„Það var einmitt vegna þess,
að ég hringdi,” sagði ég, „það er
þetta með barnleysið.“
„Hvað veizt þú um það?“,
spurði hún. „Ég veit, að það hef-
ir ekki verið pantað fæðingar-
pláss í sjúkrahúsunum eftir 21.
júní. Og það er sama sagan um
þvert og endilangt landið og
líka í öðrum löndum.“ María
svaraði engu góða stund, ég hélt
jafnvel, að það hefði liðið yfir
hana. En loks sagði hún, og tal-
aði lágt: „Stephen ég hélt í
fyrstu, að þetta væri í sambandí