Úrval - 01.04.1974, Síða 31
VERTU SNJALL FERÐAMAÐUR
29
lagi sem er til sama ákvörðunar-
staðar. Reglur refsa ílugfélögum
ekki fyrir yfirbókanir, meðan seink
unin til ákvörðunarstaðar nemur
ekki meira en tveim klst. á innan-
landsflugi og fjórum klst. á milli-
landaflugi. Lengri seinkun gefur
þér í Bandaríkjunum kost á endur
greiðslu fargjalds, allt að 200 döl-
um og ókeypis fari með næsta fá-
anlega flugi. í flugiðnaðinum kall-
ast þetta „farsynjunaruppbót“, en
til þess að fullvissa þig um, að þú
fáir hana, verður þú að fá skrif-
lega yfirlýsingu frá afgreiðslu fé-
lagsins, strax eftir að þér hefur
verið neitað um far. Þá átt þú rétt
á endurgreiðslu innan tuttugu og
fjögurra klst. Til að forðast hættu
á að vera látinn „sitja á hakanum“,
skaltu áætla að mæta snemma á
flugvellinum með tilliti til umferð-
artafa.
Sennilega er enn gremjulegra að
tapa farangri en að vera sleppt úr
flugi. Reynslan sýnir, að aðeins
mjög lítill hluti farangurs glatast,
en það er engin huggun ferðamanni,
sem kemur til ókunnrar borgar með
ekkert annað en fötin, sem hann
stendur í. Ef allur farangur úr flug
vélinni er kominn í land og þinn
sést hvergi, þá hafðu strax sam-
band við flugafgreiðsluna. í mörg-
um tilfellum hefur farangurinn ver
ið með réttri vél, en ekki verið tek
inn úr henni. Ef þú bregður skjótt
við, gæti verið mögulegt að leita í
vélinni, áður en hún fer aftur.
Ef farangurinn finnst ekki innan
þriggja daga, verður krafa þín met
in og skaðabætur greiddar. rieymdu
því kröfumiðann, sem þú fékkst,
þegar þú lagðir farangurinn inn vel,
vegna þess að hann er eina sönn-
unin fyrir því, að þú hafir yfirleitt
haft farangur meðferðis. Ef þú
þarft að fá aðra hluti í staðinn fyr-
ir nauðsynlega hluti strax, t. d.
snyrtivörur eða jafnvel ný föt, þá
semdu við flugfélagið um tafar-
lausa endurgreiðslu.
C.A.B., flugmálaráð Bandaríkj-
anna, takmarkar ábyrgð flugfélaga
við 500 dali (um 45000 kr.) fyrir
hvern farþega vegna glataðs eða
skemmds farangurs. Ef farangur
þinn er meira virði, skaltu kaupa
farangurstryggingu til viðbótar í
farmiðasölunni, áður en þú gengur
um borð. Ef farangurinn skemmist,
tilkynntu félaginu það þá strax. Það
mun þá láta gera við hlutinn eða
endurgreiða hann.
Jafnvel þótt þú neitir þessa rétt-
ar þíns til fulls, gæti svo farið, að
þú værir ekki ánægður með með-
ferð viðkomandi flugfélags á þér. í
slíku tilviki skaltu vera ófeiminn
við að leita frekari upplýsinga hjá
hlutaðeigandi yfirvöldum.
o—o
Innskot þýðanda:
Reglur C.A.B. takmarkast við
flugvélar sem fljúga undir banda-
risku flaggi (t. d. vélar Loftleiða
hf., sem flestar eru á bandarískum
einkennisstöfum, en ekki vélar
F.Í.). Yfirvöld annarra þjóða fleyta
þessum reglum örlítið til, þó að í
megindráttum séu þær mjög áþekk
ar.
ÞM