Úrval - 01.04.1974, Side 97

Úrval - 01.04.1974, Side 97
ÁSTKONUR BYRONS 95 „Þegar þú lest þetta, verð ég kom in margar mílur burtu. Vertu ekki argur yfir mér. Ég veit varla, af hverju ég er að skrifa. En mér finnst þó, að ég sé að tala við þig. Vissulega hefði ég verið ham- ingjusamari yfir því að mega koma og sjá þig, kveðja þig með kossi, áður en ég legði af stað. Ég óttast mest, að þú gleymir mér, en ég skal þrauka alla langa og dimma vetrarmánuðina, meðan þú átt aðeins, vona ég, sælar sól- skinsstundir. Aðeins eitt bið ég um og grát- bæni: Gættu þín á of miklu víni.“ Hinn 1. janúar 1817 fæddi Claire stúlkubarn. Daginn eftir skrifaði Mary bréf til Byrons, á þessa leið: „Hún bað mig að bera þér ástar- kveðjur og segja þér, að hún væri í ágætu skapi og henni liði eins vel og vænta megi bezt.“ Byron lávarður ákvað nafn dótt- ur sinnar. Hún skyldi heita Allegra. En svo mjög sem Claire dáði dóttur sína, var hún staðráðin í því, að hann skyldi sem mest annast uppeldi hennar. Það taldi hún henni fyrir beztu, svo frægur og tiginn sem hann var. Aðstaða hans og auður átti að tryggja framtíð Allegru litlu. Þessi ráðagerð var honum ekki ógeðfelld. Hann skrifaði systur sinni á þessa leið: „Mér er sagt, að hún sé miög fal- leg, með blá augu og dökkt hár. Og þótt ég hafi aldrei verið hrifinn af móður hennar eða talið það sam- band nokkuð sérstakt þá má vel vera, að gott sé að hafa eitthvað i ellinni til að halla sér að. Og senni- lega ætla forlögin þetta litla grey mér til mikillar og ef til vill hinnar einustu huggunar." Hinn 11. marz 1818 lögðu þær mæðgur Claire og Allegra af stað í Ítalíuferð ásamt Mary og Shelley, tveimur börnum þeirra og tveim barnfóstrum. Þremur vikum síðar komu þau til Milano. Byron vildi ekkert meira hafa með Claire að gera, en hann sendi samstundis eftir telpunni. Claire lét að boði hans, þótt hún væri bæði særð og reið yfir rudda- skap hans og orðrómi um ítalska ástkonu, sem nú gekk fjöllunum hærra. Allegra litla var því send til föð- ur síns með svissneskri fóstru þeirra Shelleyhjóna, sem Elísa hét. Meðan Claire ferðaðist um Norð- ur-ítaliu í fylgd Shelleys og fjöl- skyldu hans, lét hún bréfum rigna yfir Byron með fyrirspurnum um dótturina. „Hvernig líður Allegru minni?“ spurði hún. „Er hún kát og glöð. Hefur hún slegið þig? Eg vona> að svo sé. Hún mætti gjarnan á sinn barnslega hátt borga þér fyrir alla þína ósanngirni og ónot í minn garð. En í hvert sinn, sem ég sé þetta litla skinn fyrir mér, þá fer mér bros um varir. Hún er svo sæt og skrýtin." Byron lávarður var dýravinur. Hins vegar sagðist hann oft „fyrir- líta börn“. Hann ritaði systur sinni einu sinni þessa yfirlýsingu:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.