Skírnir - 01.01.1876, Qupperneq 126
126
RÚSSLANI).
hershöfðingi skipaSur þar til landstjóra, en Nasr-Eddin kon-
ung hafa Rússar skotiS skjólshúsi yfir, og situr hann nú í
Taschend.
Af innlendum höfSingjum, sem Rússar hafa afskipti af þar
eystra, er Jakub Khan einna helztur. Hann situr í borg þeirri,
er Kaschgar heitir og liggur uppá háiendi MiS-Asíu, austur af
Khokand. Sú borg er talin helg af TartaraþjóÖum, því aS þar
var æzti dýrSlingur þeirra grafinn endur fyrir löngu, er Hasreti
Asak hét. Jakub þessi er ákafur MúbamedstrúarmaÖur, telur
sig „eptirrennara spámannsins“ og hefir því afarmikiS álit á sér
hjá öllum trúarbræörum sínum þar eystra. Nafnbót þessa á
Miklagarössoldán annars eingöngu aÖ bera, en völd hans og álit
eru mjög á förum nú, svo aÖ Jakub veitir mjög auövelt aö halda
nafnbót þessari hjá öllum Törturum. Stjórnandi er hann allnýtur,
eptir því sem þar er vani, einkum lætur hann sér annt um aö auka
her sinn og búa hann sem bezt aÖ vopnum og ööru; allur er
búningur liösmanna hans sniöinn eptir því, sem áður á tímum
tíðkaðist hjá Tyrkjum, og mælist það mjög vel fyrir hjá öllum
trúarbræörum hans. Ekki hafa Rússar né Bretar gott auga á
herbúnaði þessum, en Jakub kemur þó svo ár sinni fyrir borð,
aö báðir telja hann sér vinveittan, og er það þó mjög efasamt,
því að undirferli hans er við brugðið. I fyrra sumar, átrnr en
uppreistin varö í Khokand, haföi bann mikið og margt saman við
Kiptjaka að sælda, og töldu Rússar því víst seinna, aö hann
myndi hafa verið hér frumkvööullinn; þegar Jakub komst á snoðir
um þetta, sendi hann gagngert mann vestur til Pétursborgar, og
sór og sárt við lagði, að hann hefði ekki neitt í þeim ráðum verið,
og til að mýkja þá enn meira stakk hann upp á, að bréfberi
skyldi stöðugt ganga tnilli aðalstöðva Rússa í Khokand og ríkis
síns, og rússneskur erindreki taka fastan bústað í Kaschgar.
þetta þótti Rússum eigi lítiö hagræði uppá verzlun sína, og tóku
þessum kosti fegins hendi.
í fyrra skiptu Rússar við Japansmenn á syöra helming eyjar-
innar Sachalin, sem liggur fyrir mynninu á Amúrfljótinu — hinn
helminginn áttu þeih áöur — og gáfu viö Kúrileyjar, er liggja noröur
afJapau. Ey þessi er 125 mílur á lengd og 8 — 12 á breidd, og