Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Síða 34
38
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
fjallar um minjar um frumkristni á frlandi og skosku eyjunum, greini-
lega verið skrifaður fyrir löngu, því að þar var ekki stuðst við nýjustu
rannsóknir á þeim stöðum sem fjallað var um. Hefur undirrituð því
meira og minna endurskrifað þann kafla í ljósi nýjustu rannsókna.
Eftir fráfall Kristjáns var fjölskyldu hans mjög umhugað um, að
úrvinnslu rannsókna hans í Papey, sem hann var búinn að leggja svo
mikla vinnu í, yrði lokið og að gengið yrði frá þeim til útgáfu. Árið
1985 veitti Landsvirkjun nokkurn styrk til minningar um Kristján til að
hefja úrvinnsluna, og var undirrituð fengin til þess verks. Árið 1987
fékkst síðan styrkur úr Vísindasjóði til að ljúka verkinu. Það sumar fór
undirrituð m.a. út í Papey í 3 daga í júlílok til að kynnast aðstæðum,
skoða nánar ýmsar byggðaleifar og gera minjaskráningu þá sem hér er
birt í viðauka.
Þau gögn sem fyrir lágu, þegar undirbúningur að útgáfu rannsókn-
arinnar í Papey hófst, voru drög að þeim köflum, sem hér hafa fengið
heitin 1.—7. kafli, og auk þess að innganginum. Sú stefna hefur verið
tekin við ritstjórnina, að fylgja þeim drögum sem Kristján var búinn að
leggja og láta það sem hann hafði skrifað standa meira og minna eins
og hann gekk frá því. Ymsu var þó ólokið við frágang hinna ýmsu
kafla, og var töluvert verk að samræma þá í eina heild, ganga frá til-
vitnunum, fundaskrám og velja myndefni. Vera má, að heildin hefði
tekið á sig aðra mynd í meðförum Kristjáns, ef honum hefði enst aldur
til að ljúka verkinu, en ólíklegt er, að niðurstöður rannsóknarinnar
hefðu orðið aðrar.
Helstu viðbætur undirritaðrar eru, eins og fyrr segir, í 3. kafla, sem
var meira og minna endurskrifaður í ljósi nýrra rannsókna sem unnar
hafa verið innan fornleifafræðinnar á skosku eyjunum á síðustu 15 til 20
árum. í 5. kafla var samin fundaskrá og dregnar saman niðurstöður
þær, sem fengust við uppgröft tóftarinnar sem þar er lýst. í 6. og 7.
kafla voru fundaskrárnar fylltar út og endurbættar. Niðurlagskafla samdi
undirrituð, en þar eru helstu niðurstöður rannsóknarinnar í heild
dregnar saman. Tilvitnanir höfðu þegar verið gerðar að hluta, en þörfn-
uðust viðbóta, lagfæringa og samræmingar, og vandlegrar yfirferðar.
Neðanmálsgreinar, þar sem fram koma viðbætur og athugasemdir,
skrifast flestar á reikning undirritaðrar, nema í 1. kafla. Þá var saminn
enskur útdráttur og heimildaskrá. Minjaskráin í viðauka er einnig
verk undirritaðrar. Viðbætur í inngangskafla eru auðkenndar með því
að draga textann inn, annars staðar ekki.
Búið var að ganga frá öllum aðaluppdráttum þeirra rústa, sem upp
voru grafnar, en suma minni háttar uppdrætti og snið þurfti að hrein-