Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Side 40
44
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hellisbjargi. Það var ekki um annað að gera en að fara enn úr Papey að
óloknu verki.
Og enn höguðu atvik því svo, að ekki varð eins fljótt frarn haldið og
ég hafði vonað. Næsta ferð var ekki farin fyrr en 1971, og þá mjög farið
að halla sumri. Þetta var fjórða ferðin. Með mér voru að því sinni
Valgeir G. Vilhjálmsson hreppstjóri, Ingimar Svcinsson skólastjóri á
Djúpavogi og Árni Hjartarson stúdent. Við komum í eyna skömrnu
eftir hádegi hinn 31. ágúst og fórum þaðan aftur síðdegis hinn 8. sept-
ember. Veðrið lék ekki við okkur fremur en fyrri daginn, en þó lukum
við rannsókn rústarinnar í Goðatættum og einnig, eftir því sem við
varð komið, tóftarinnar undir Hellisbjargi. Mátti heita að við hefðurn
þolanlegan frið við þessar rannsóknir, en loft var kalt og rakt og
stundum úrkoma, og var þetta bæði til ama og tafar. Þó vannst okkur
einnig tími til að endurskoða ýmsar fyrri athuganir og kynna okkur
staðhætti betur en áður.
Svo átti að heita, að í þessari ferð væri lokið þeim rannsóknum sem
fyrirhugaðar höfðu verið. En oft vill það verða svo þegar heim er
komið úr rannsóknarferð og farið er að vinna úr gögnunum, að manni
finnst að enn sé mörgu ósvarað og enn þyrfti að huga nánar að ýmsu.
Og þannig fór í þetta sinn.
Löng bið varð á því, að Kristján kæmist aftur út í Papey, og munu
þar aðallega hafa valdið annir vegna forsetaembættisins. Hann lét af
því enrbætti árið 1980, og sumarið 1981 fór hann tvisvar út í Papey.
Voru það síðustu ferðir hans þangað. í báðum þessum ferðum voru
með honum þeir Valgeir G. Vilhjálnrsson frá Djúpavogi, Heimir
Gíslason kennari og skólastjóri frá Hornafirði og Kristinn Skarp-
héðinsson, nemi úr Reykjavík.
Fyrri ferðin stóð frá 5. til 16. júlí og fór að mestu í að rannsaka
nánar tóftina undir Hellisbjargi. Var uppgröfturinn frá árinu 1971
stækkaður um 2 m á alla vegu, veggir rannsakaðir nánar og nýr upp-
dráttur gerður. Ástæða seinni ferðarinnar, sem stóð frá 28. júlí til 2.
ágúst, voru tóftirnar tvær við Áttahringsvog, en Kristján fékk fyrst
vitneskju um þær daginn sem fyrri ferðinni lauk. Var tóftin Átta-
hringsvogur II öll grafin upp, en aðeins gerður krossskurður í Átta-
hringsvog I. Taldi Kristján sig nú hafa lokið rannsókn helstu minja
í Papey.
Ljúft er og skylt að þakka öllum sem með margvíslegri hjálp hafa
gert mér kleift að rannsaka fornminjar í Papey. Þjóðminjasafn íslands