Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Page 141
GOÐATÆTTUR
145
42. mynd. Coðatættur II, séð frá Goðatœttum I. Ljðsm.: Morgunblaðið. Árnijohnsen. - Fig. 42.
Goðatœttur II, seen from Goðatœttur I. Photo: Morgunblaðið. Árni Johnsen.
verið tvö byggingarskeið: það fyrra sem fjós, tengt byggð í Goða-
tættum II, það seinna sem mannabústaður einhvers konar.
6.2. Goðatœttur II
Áður en lokið væri rannsókn Goðatætta I sumarið 1969, var því veitt
athygli, að á hólrananum rétt norðan við þær, var þýfi, sem bar þess
nokkur merki, þegar að var gáð, að vera kynni rústir af aflöngu húsi.
Var þá grafinn skurður þvert yfir svæðið, og kom í ljós öskugólf, bleik-
leitt, og steinar sáust til beggja hliða, einmitt þar sem svo sýndist á yfir-
borði að veggir kynnu að vera. Engin tök voru á að grafa þetta hús upp
að því sinni, en hins vegar var það gert sumarið 1971, og kom í ljós, að
þarna var forn skáli, sjálft bæjarhúsið.
Hús þetta er á hólnefnu, norðan við hólranann sem fjósið (I) er á og
verður lítið lautardrag á milli (42. mynd). Það snýr öfugt við fjósið,
þannig að suðurgafl þess snýr að norðurhlið fjóssins. Á milli húsanna
eru minnst um 17 m.
Uppgreftinum var hagað þannig, að fyrst var grafinn skurður þvert
á stefnu hússins norðarlega eða nánar tiltekið rétt norðan við eldstæðið,
sem síðar kom í ljós. Fundust þá undir eins glögg skil við gólf, svo og