Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1988, Page 221
225
SKÝRSLA UM Þ)ÓDMINJASAFNIÐ 1988
safnið. Dagskrá var send út í janúar og september þar sem tilteknir voru
þeir kennsluþættir, sem stóðu grunnskólanemum til boða í safninu.
Sem fyrr var reynt að tengja verkefnin á safninu námsefni skólanna eftir
föngum.
Alls fengu um 5300 grunnskólabörn kennslu á safninu á árinu. Hver
hópur dvaldist að meðaltali í 1—1,5 klst. á safninu. Mest var aðsóknin í
marz, apríl og maí og veitti menntamálaráðuneytið þá leyfi til þess að
fengin yrði aðstoðarmanneskja í 8-10 stundir á viku. Var ráðin til starf-
ans Lára Ágústa Ólafsdóttir, B.A. í sagnfræði frá Háskóla íslands.
Eftirtaldir þættir voru á dagskrá:
6 ára - 2. bekkur: Áður fyrr í sveitinni. Spjallað um störf og leiki í
sveitinni áður fyrr, gömul áhöld og ílát skoðuð. Létt verkefni unnin.
2. -3. bekkur: Kynning á Þjóðmitijasafninu. Safnið skoðað og fjallað
um nokkra vel valda hluti.
3. bekkur: Krossaspurningar. Léttur leikur, þar sem börnum er kennt
að leita sér upplýsinga um safngripi með því að skoða þá, eða lesa á
miða við hlutina.
4. bekkur: Landnám íslands. Fjallað um fornleifar frá landnámstíð.
Verkefni í krossgátuformi.
5. -6. bekkur: Trúarlegir munir. Litskyggnusýning og verkefni um
ýmsa muni úr heiðni, kaþólskri trú og lúterstrú.
7.-9. bekkur: Líf og störf áður fyrr. Verkefni unnin í hópvinnu í sjó-
minja- og landbúnaðarsafni.
Nýjung í safnkennslunni var skuggabrúðuleikhús fyrir yngstu safngest-
ina. Bryndís Gunnarsdóttir kennari og leikbrúðukona samdi leikþáttinn
í samráði við safnkennara. Sýndur var stuttur leikþáttur og síðan unnu
börnin verkefni um ýmsa muni, sem kynntir voru í leikþættinum.
Útbúinn var safnkassi um ull og tóvinnu og geta kennarar fengið hann
að láni út í skólana. í kassanum eru m.a. kambar, snældur, ull, gamlir
munir og textílar og kennsluhefti um meðferð ullar áður fyrr.
í tilefni 125 ára afmælis safnsins var haldin teiknisamkeppni meðal
skólabarna um efni tengt gamla tímanum og sögu okkar. Alls bárust
rúmlega 1500 myndir og fór verðlaunaafhending fram 26. mars, en þá
var um leið opnuð í Bogasal sýning á um 300 myndum úr keppninni.
Afmælisdr Þjóðtninjasafnsins
Á árinu varð Þjóðminjasafnið 125 ára og var afmælið haldið hátíðlegt
á ýmsa lund. Á sjálfan afmælisdaginn var alþingismönnum boðið að
15