Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 55

Réttur - 01.01.1955, Page 55
RÉTTUR 55 sín sérstöku lögmál, sem ekki verði skilin út frá hinu eldra stigi eða einstökum hlutum eða eindum kerfisins, heldur feli í sér eðlis- breytingu, séu nýtt hreyfingarform, sem eigi rót sína í heildar- gerð og ytri tengslum liins nýja stigs. Hin eldri lögmál séu að vísu ekki úr sögunni, en séu nú þættir í nýju og æðra samhengi og mótist af því. Engels orðaði þessa hugsun á þá lund, að hann kallaði eðlis- fræðina aflfræði sameindanna, efnafræðina eðlisfræði frumeind- anna og iíffræðina efnafræði eggjahvítuefnanna. Og hann bætti því við, að með þessu orðalagi vildi hann benda á, hvernig ein vísindagreinin tæki við af annarri, bæði að þvi er varðaði tengsl þeirra og samfelldni (kontinuitet) sem og mismun þeirra og ó- samfelldni (diskontinuitet) Eldri lögmál duga aldrei til skýringa á nýjum þróunarstigum. Lífið verður t. d. ekki skýrt með lögmálum eðlis- eða efnalræð- innar eingöngu, enda þótt þau gildi þar áfram. Þjóðfélagið og mannleg saga verða heldur ekki skýrð með lífræðilegum form- úlum um „sigur hins hæfasta” eða „áreiting og svar'' (Toynbee). Arangur þessháttar söguskýringa verður markleysa einber, ris- láe og hversdagsleg. Lögmál hvers þróunarstigs eru fóigin í því sjálfu. Þar verður að grafa eftir ’þeim. Það er verkefni líffræðinnar að lýsa fyrirbrigðum lífsins og skýra eðli þess og upphaf. Þar hafa um hríð einkum verið uppi tvö sjónarmið, og reyndar stima eðlis og þau, sem ég drap á hér að framan. „Vítalistarnir" hafa haldið því fram, að sérkenni lífs- úis yrðu ekki skýrð út frá lögmálum efnisins. Þar kæmi til skjal- anna sérstakt lífsafl, óefnisbundið og yfirskilvitlegt, sem byggi yfir eigin markmiði, blési lífsanda í efnið og gæfi því stefnu, saxnræmi og tilgang. Það þarf vitanlega ekki að taka fram, að þetta er engin skýring, hið óþekkta er „skýrt" með öðru óþekktu, - vanþekking okkar hefur aðeins hlotið annað nafn, heitir ekki lengur vanþekking, heldur lífsafl, „entelechia" eða eitthvað þess- háttar. Líffræðingar þeir, sem aðhyllast hina vélrænu efnishyggju, hafa hins vegar litið svo á, að ekki væri um grundvallarmun að ræða rnilli líflausrar og lifandi náttúru og hafa reynt að skýra lífið út frá eðlis- og efnafræðilegum lögmálum eingöngu. Að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.