Réttur - 01.01.1955, Side 102
102
RÉTTUR
Hún mundi áreiðanlega aukast meira en næmi vaxandi þörf
til innanlandsneyzlu, hve ört er erfitt eða jafnvel ómögulegt að
gera nákvæma áætlun um. En nokkra bendingu gefa þær upp-
lýsingar er birtar voru frá aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna í
marzmánuði s 1. að s.l. ár hefði mjólkurframleiðslan á svæðinu
vaxið um 10,4%. Hafði þó framleiðendum mjög lítið fjölgað. Þótt
fjárpestirnar hafi hingað til hindrað aukningu kjötframleiðslunn-
ar í sama mæli þá mun hún fljótlega koma á eftir, enda sér þess
glögg merki, og má telja nokkurnveginn víst, að mjög fljótlega
muni kjötframleiðslan gera allmiklu betur en fullnægja inn-
anlandsþörf.
Kemur þá til greina lausn þess máls með sölu úr landi. Hefir
nokkuð á því borið undanfarin ár, að ýmsir þeir er telja sig for-
svarsmenn landbúnaðarins, hafi tæpast viljað viðurkenna það, að
hann ekki væri þegar á því stigi, að geta bæði annað innanlands-
þörf og útflutningsframleiðslu, og því viljað halda áfram kjöt-
útflutningi þótt framleiðslan fyllti ekki þarfir innanlandsmarkað -
arins. En svo barnalegur metnaður, sem fólginn er i þeirri afstöðu,
þá er jafnsjálfsagt að taka alvarlega á viðfangsefninu þegar að-
stæðurnar krefjast, svo sem nú mun verða á næstunni.
Meðan við fluttum kjöt út úr landinu voru Norðurlönd, einkum
Noregur og síðar Bretland, aðalmarkaðslönd okkar. Því miður
var oft þá staðreynd við að glíma, að verðið var ekki svo hátt,
að gott gæti talizt, og ekki svo gott sem innanlandsmarkaðurinn
hefur jafnan gefið, a. m. k. þegar kaupgeta neytendanna hér
hefur verið sæmileg, eða góð Þær tilraunir sem gerðar hafa
verið til að vinna kjötmarkað í Bandaríkjunum hafa heldur ekki
borið góðan árangur, svo að gjörsamlega hefur fallið niður sá
áróður, sem fyrir þeim var hafinn á sínum tíma. Þetta kann nú
lesandanum að finnast fremur óglæsileg viðurkenning, jafnframt
því að halda fram þeirri skoðun, að við þurfum nauðsynlega að
hefja útflutning á kjöti í verulegum og vaxandi mæli. En hér
mun þó koma fleira til greina.
Það er staðreynd, að með vaxandi framleiðslu skapast mögu-
leikar á lækkandi framleiðslukostnaði á hverja einingu. Öll tækni
sem fjárfestingu kostar notast betur, s.s. vélar og annað og fram-
leiðsluafköst einstaklingsins verða meiri. Þetta á að hjálpa okkur
til að standast í framtíðinni verðsamkeppnina á erlenda markað-
inum. En einnig skal bent hér á annað.