Andvari - 01.01.1976, Blaðsíða 55
andvari
SIGURÐUR NORDAL
53
þessum sæg af einkabréfum til alls konar manna, sem honum gat aldrei
til hugar kornið, að yrðu birt almenningi. En ég reið ekki feitum hesti
frá þeirri leit. Ef nokkuð er að mununum, er maðurinn, sem kernur
fram í bréfunum, enn grómlausari en kvæðin sýna, gætnari og grand-
varari, hárvissari í dómum á sjálfan sig og skilningi á sjálfum sér. Allt,
sem ég hef þótzt athuga skást um Stephan, hafði hann séð betur sjálfur.
Eg hef gefizt upp fyrir honum, setzt við fótskör hans. Það er sannleikur-
inn. Llm kvæði hans hefur mér fundizt því meira sem ég las þau betur, og
ríkari skilningur á manninum hefur varpað á þau nýjum ljóma. Maður-
inn reyndist því skemmtilegri og girnilegri til fróðleiks sem ég gerði mér
betri grein fyrir því, að styrkur hans er ekki styrkur fátæktarinnar, held-
ur auðlegðarinnar, — að þar eru sundurleitir og óstýrilátir miskliðir í
eðlisþáttum og æviraunum stilltir til fjölraddaðs samræmis."
Útgáfan 1939 og ritgerð Sigurðar urðu mjög til að kynna verk
Stephans á íslandi og glæða skilning á þeim og þá ekki síður á honum
sjálfum, manninum, er að baki verkunum stóð.
Halldór I lermannsson hafði þau orð um innganginn í bréfi til Sig-
urðar 13. febrúar 1940, þegar bann þakkaði bonum fyrir Andvökur, að
hann væri „sjálfsagt það bezta, sem skrifað hefur verið á íslenzku um
líkt efni“.
Inngangur Sigurðar var gefinn út að nýju nokkuð aukinn 1959
undir heitinu Stephan G. Stephansson. Maðurinn og skáldið.
Sigurður flutti á 75 ára afmæli Einars Benediktssonar 31. október
1939 útvarpserindi um skáldið, og var það prentað í Skírni 1940.
Hann leggur þar út af Dettifosskvæði Einars og þá einkum eftir-
farandi erindi:
Ég þykist skynja hér sem djúpt í draum
við dagsbrún tímans, nýja magnsins straum,
þá aflið, sem í heilans þráðum þýtur,
af þekking æðri verður lagt í taum.
—Er hugarvaldsins voldug öld oss nær,
þá veröld deyr ei, er hún guð sinn lítur,
þá auga manns sér allri fjarlægð fjær,
þá framsýn andans ljósi á eilífð slær
og mustarðskorn af vilja björgin brýtur,