Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1976, Blaðsíða 133

Andvari - 01.01.1976, Blaðsíða 133
ANDVARI ÍSLAND! JA ÞVÍ EKKI ÞAÐ? 131 jafnblátærar og þá. Þeir myndu kannast viS ýmsa þá smáu yfirborðsdrætti í landslaginu, sem í öðrum löndum gjörbreytast eða eru máðir út á einum áratug. Mikið myndi það gleÖja menn og konur víkingaaldar að geta, eins og ég á þessu ferÖalagi mínu, litið yfir þá staði, þar sem þeir höfðu lifað og starfað. Efalítið myndi það þó draga úr ánægju þessa fólks að finna, að þótt landið hafi ekkert breytzt, varðveitir það enga minningu um það, fremur en um þá fugla, sem flugu hér yfir mýrlendið fyrir þúsund árum. Þetta er þó ekki alveg rétt. Einstöku óljósar menjar hafa varðveitzt, vottur af vegghleðslu hér og þar, ógreinilegar út- línur fornrar hofrústar, laut, þar sem forðum var búð og þar sem verzlað var, þegar skip komu heim frá Noregi eða Bretlandseyjum. En snjór hefur um aldir fallið á þessa staði, stormur og regn hafa rofið og jafnað, svo að útlendingi myndi varla detta í 'hug, nema honum væri á það bent, að þessar ógreinilegu útlínur eða strjálu grjótdreifar væru vottur mannaverka. Á ferðalagi mínu hreppti ég ekki alltaf, og raunar ekki heldur oftast, góð- viðri. Dalirnir voru ekki alltaf baðaðir mjúku sólskini. Oft grúfðu yfir þeim ský, sem sýndust næstum eins föst fyrir og sjálfar fjallahlíðarnar. Stundum lagðist kuldaleg þoka yfir landið, og síðan rigndi langtímum saman. Var þá sannast að segja sem við ferðuðumst um óbyggt land, eða um land, þar sem vofur einar voru á reiki og gáfu frá sér ömurleg illsvitandi hljóð, sem voru í raun krunk hrafna. Þegar upp stytti og aftur birti í lofti, sáust hér og þar litlar, álútar og ömurlegar verur, sem siluðust áfram og sveifluðu handleggjunum á sérkennilegan hátt. Ég gat aðeins ímyndað mér, hvaða verur þetta væru, ís- lenzkir bændur að slá síðustu dýrmætu slægjurnar. Skrumskældar af þokunni sýndust þessar verur í smæð sinni og fjarska vera vanskapaðir jarðarandar í einhverjum erindagjörðum, sem áttu ekki skylt við neitt mannlegt. Þegar við rákumst á einhverja af þessum verum rétt við veginn, kom það alltaf á óvart að sjá hana rétta úr sér og sjá góÖvildina í brosi hennar, er hún skiptist á kveðjum við leiðsögumann minn. Ég hafði lesið svo rnikið um íslenzkt þunglyndi, og þessa drungalegu daga átti ég von á því að sjá einhver merki þess á því fólki, sem við hittum, en ef dæma má af svo stuttum kynnum, eru Islendingar jafn glaðlyndir og fólk í öðrurn löndum. Og vissulega eru þeir ekki jafnmikið uppá sólskin komnir til að geta haldiÖ sálarheilsu. Ég hygg, að skoÖanir þeirra, sem svo mjög hafa fjasað um íslenzkt þunglyndi, hafi litazt af landslagi og loftslagi og þeirra eigin þunglyndisþönkuin, er þeir ferðuðust á þessum eyðilegu slóð- um. Að vísu ætti að vera auÖvelt að sannfæra sjálfan sig um, að þunglyndi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.