Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2003, Síða 102

Andvari - 01.01.2003, Síða 102
100 ÞÓRIR ÓSKARSSON ANDVARI og skáldskap. Þeim væri einnig frjálst að búa til nýja viðburði og skapa innra líf sögupersóna sem til nokkurs væri að þekkja. Hér eins og í dómi Tómasar um Schiller má augljóslega greina hugmyndimar um hið fagra, sanna og góða. Þetta þýðir þó alls ekki að Fjölnismenn hafi verið sinnulausir um ytra form skáldskapar. Þeir skipa sér þvert á móti í flokk fjölmargra samtímamanna sinna, þ. á m. Kants og Sibbems, sem töldu að listamenn yrðu að hafa þekk- ingu og hæfileika til að vinna úr þeim efnivið sem andinn blési þeim í brjóst og fella hann í viðeigandi formgerð. ímyndunaraflið þyrfti að haldast í hendur við skilning og tækni. í Ferðabók sinni fullyrðir Tómas Sæmundsson því ekki einungis að skáldskapargáfan sé „sannkölluð himinsins dóttir“ (335) heldur leggur einnig ríka áherslu á formræn fegurðarsjónarmið, jafnvel á kostnað hagnýtra hugmynda. Gott dæmi um slíkt er umræða hans um það hvemig beri að meta störf manna og verk almennt, þar með talin listaverk: „Sé hin útvortis lögun ekki samkvæm fegurðarinnar kröfum, getur maður ei verið ánægður, jafnvel með hið nytsamligasta, hið bezta verk“ skrifar hann (331). Á öðrum stað víkur hann að tengslum ímyndunarafls og formfágunar og segir: Þó nú að snilldin að því leyti sem hún er afsprengi hins skapandi ímyndunarkraftar sé af náttúrunni gefin og geti ekki lærzt, má þó bæði niðurþagga og upplífga þessa fegurð- arinnar gáfu, má hennar afkvæmi, er hún skal ífærast útvortis búningi, reifa margvísliga, svo eitt geti betur farið en annað. Þess vegna má snilldarmaðurinn aldrei slá slöku við að gaumgæfa snilldarinnar verk. Hann má ekki vera ókunnur þeim reglum sem almennt viðteknar eru fyrir því falliga eður voga sér nokkuð sem þeim er mótstríðandi. (337) Þjálfun listamannsins skiptir því einnig verulegu máli fyrir hina endanlegu útkomu, ásamt þekkingu þeirra á því sem almennt er viðurkennt fagurt, þ.e. því sem Kant nefndi „sensus communis“ (§40). Vegna þess eru almennir feg- urðardómar mögulegir. Að tæknilegum atriðum víkur Jónas Hallgrímsson einnig í ritgerð sinni „Um Rímur af Tistrani og Indíönu“ þegar hann fullyrðir að eitt helsta verkefni skálda sé „að koma sem beztri skjipun á efnið, og gjeta síðan leítt það í ljós í fagurlegri og algjörðri mind“ (Fjölnir 1837: 22). Ann- ars staðar ræða þeir Fjölnismenn um fagurfræðilega dóma íslendinga og full- yrða að séu þeir mjög ólíkir dómum annarra þjóða veki það grun um „að vorum smekk og uppfræðingu sje ábótavant“ (Fjölnir 1838: 8). Fegurðar- dómar hvíli með öðrum orðum á almennri reynslu og þekkingu. Þær hugmyndir sem hér hafa verið raktar gengu að mörgu leyti þvert á við- horf íslenskra skálda og lærdómsmanna fyrri alda sem töldu gjaman að skáld ættu fyrst og fremst að hafa áhrif á lesendur sína, fræða þá og sannfæra um þau sjónarmið sem þau sjálf aðhylltust. Skáldskapurinn væri þannig hlið- stæða mælskufræðinnar eða jafnvel ein af greinum hennar. Viðhorf Tómasar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.