Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2003, Side 144

Andvari - 01.01.2003, Side 144
142 YELENA YERSHOVA ANDVARI þótt þau væru í raun og veru með öllu óþululeg, sömu rómantísk minni oft endurtekin, o.s.frv. Hin nýja bókmenntagrein var ólík þeirri gömlu einnig í því að þululjóð urðu það sem er kallað „kvennabókmenntir“, enda þótt upp- runalega tilheyrðu þulur ekki kvennamenningu. Þululjóð, flest með sömu sniði og fyrstu „þulur“ Huldu og Theodoru, voru áberandi í kveðskap skáld- kvenna fram yfir miðja 20. öld. Karlskáld nýrómantíkur gældu við margar tegundir þjóðkveðskapar en létu þó síðmiðaldaþulur að mestu leyti ósnortnar.101 Þegar Valgarður Egilsson og Þorgrímur Starri Björgvinsson ortu sínar „þulur“, sem voru langt frá rómantískum „kvennaþulum“ fyrri hluta 20. aldar, þurftu þeir beinlínis að stríða við þessa fastmótuðu „kvenlegu þulu- hefð“, en þeir notuðu sjaldan eða aldrei þau bragskemu sem höfðu fest við þululjóð, vísanir í minni mæli, og heimur ljóða þeirra var fremur raunsæis- legur og jafnvel hversdagslegur á ýktan hátt. Hér er að vísu ekki vettvangur til að ræða stöðu skáldkvenna í bókmennta- sögu 20. aldar. Þó má, í framhaldi af þessari túlkun á því hvemig þulur urðu að „kvenlegum kveðskap", bera saman „milda formbyltingu“, en Hulda var meðal þeirra sem komu henni af stað, og þá breytingu sem gerðist þegar konum fjölgaði á ritvelli, en Hulda varð fyrsta skáldkonan hér á landi sem vel var fagnað. í báðum tilvikum notaði Hulda svipaða aðferð, nema að hún not- færði sér raunveruleg einkenni þulna síðmiðalda hvað formið varðar,102 en „kvenleiki“ þulna, sem hjálpaði Huldu að finna sitt sérrými á skáldabekk, var ekki raunverulegt einkenni þeirra heldur röng mynd af þulum síðmiðalda í augum samtímamanna hennar. Hulda notfærði sér þessa blekkingu og virtist passa vel í myndina, enda varð niðurstaðan sú að „þulur“ hennar mótuðu ekki eingöngu nýja bókmenntagrein heldur að mörgu leyti ímynd skáldkon- unnar á fyrstu áratugum 20. aldar: ,,blíð[rar] og góð[rar]“, „móðurleg[rar]“ konu sem hæfði best „að kveða þulur við vöggu góðra og gáfaðra bama - ungra og gamalla“.103 Þannig birtist skáldkonan í ófáum samtíðarritdómum; og sömu ímynd notaði síðar feminíska hefðin í bókmenntafræði í greiningu á stöðu konunnar í byrjun 20. aldar.104 Þegar á það er litið virðist engin tilviljun að fyrsta bók Huldu, Kvœði 1909 sem hafði að geyma ekki einvörðungu „blíð og ljúf ‘ (a. m. k. á yfirborðinu) þululjóð heldur bersýnilega átakanleg kvæði í tiltölulega hefðbundnu formi (t. d. „Haukinn" eða „Ef að þú víkingur væri“) var ekki eins kærkomin og þululjóð hennar.105 Það er ekki heldur tilviljun að á næstu árum voru konur ekki áberandi á kveðskaparsviði. T. d. vakti önnur ljóðabók Ólafar frá Hlöðum, Nokkur smákvœði 1913, litla athygli; Theodora þurfti líka að byrja á „þulum“ og smávísum, sem máttu líka heita „kvenlegt form“, þó ekki með sömu vissu og þululjóðin. Orsaka þess má leita í breyttum ljóðasmekk,106 í því að samfélagið, sem hafði um aldamótin stutt frelsisbaráttu kvennanna, sneri að töluverðu leyti baki við þeim í e. k. afturhvarfi í kringum 1910,107 en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.