Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 24
„AF ÞVÍ LÆRA BÖRNIN MÁIIÐ'
- Við teljum pað vera okkar hlutverk að vera að minnsta kosti liður í pví að búa
börnin undir lífið, skólann og framtíðina. (Leikskólastjóri 2)
Leikskólastjórarnir skildu hlutverk sín á líkan hátt. Þeir hefðu yfirumsjón með því
að starfið fylgdi markmiðunum sem voru sett en tækju takmarkað þátt í daglegu
starfi á deildunum. Reynt var á báðum stöðum að fella daglegt starf að forsendum
leikskólastarfs eins og þær eru settar fram í Uppeldisáætlun fyrir leikskóla ásamt
ýmsum kenningum. I faglegu starfi var talið erfiðast að ná þessu fram.
Við vinnum út frá Uppeldisáætluninni og markmiðunum í leikskólalögunum og
höfum hugmyndafræðina í leikskólalögunum. Þar er pessi opinberi rammi sem okk-
ur er settur. Kannski dags daglega er fólk ekki að hugsa, hvernig uppfylli ég mark-
miðin um pað að börn eigi að vera sjálfstæðir, hugsandi pjóðfélagspegnar í sam-
félagi sem alltaf er í stöðugri próun, pannig að pað er pað sem við höfum verið að
reynaað tengja ... (Leikskólastjóri 1)
- ... Uppeldisáætlun fyrir leikskóla er nokkurs konar námskrá ... Við styðjumst
við hana íokkar markmiðum.
Sp: Hvað með mál og málnotkun?
Sv: Eg get ekki verið eins viss gagnvart pví. En ég er mjög vel meðvituð um pað að
við purfum að efla málnotkun barna ... (Leikskólastjóri 2)
Ábyrgð
Skilningur starfsfólksins á ábyrgð sinni hvað móðurmál varðar kom meðal annars
fram í því að það væri fyrirmynd barnanna og þyrfti því sjálft að tala vandað mál
og leiðrétta mál barnanna. Breytt viðhorf starfsmanna til þess að börn lesi og skrifi í
leikskóla sýndi jafnframt skilning þeirra á ábyrgð gagnvart móðurmálinu.
Leikskólakennararnir hittast reglulega, hafa fagfundi ... pá erum við með allt í
huga ... hvaða uppeldisstarf viljum við sjá íhúsinu, ekki bara á minni deild. (Leik-
skólakennari 1)
Sp: ... Málörvunarpátturinn. Takið pið hann sérstaklega fyrir og ræðið um hvern-
ig eigi að pjálfa hann?
Sv: Nei, pað hefur ekki verið gert. Það er hlutur sem parf að gera ... (Leikskóla-
kennari 2)
Samantekt
Hjá starfsfólki í leikskólunum sýna niðurstöður þriðju rannsóknarspurningar að
skilningur þess á uppeldishlutverki sínu og ábyrgð hvað móðurmál varðar var oft
samofinn öðru sem gert var. Skilningurinn sneri fyrst og fremst að barninu og
möguleikum þess til að efla sjálfstraust og sjálfstæði. Það kom fram að leikskóli
væri fyrsta skólastig barnanna og starfið þar hefði breyst hin síðari ár. Það væri
flóknara nú og miklar kröfur gerðar til starfsmanna. Starfsfólk hélt reglulega fundi
um starf sitt þar sem rætt var um hvernig starfið færi fram. Ábyrgð gagnvart móð-
urmálinu taldi starfsfólk felast í því að það væri góð fyrirmynd barnanna með sinni
eigin málnotkun. Einnig að það leiðrétti mál þeirra.
22