Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 29

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 29
RANNVEIG A. JÓHANNSDÓTTIR lýsinga og miðla fræðslu (Pinell 1985:59). Vitað er að í hlutverkaleik máta börn mál sitt og skapa ýmsar aðstæður sem eru raunverulegar eða ímyndaðar og málið verð- ur útrás fyrir hugmyndaflug þeirra eins og flokkun Halliday sýnir fram á. Rann- sóknir og reynsla sýna að börn á þessu reki hafa ríka þörf fyrir þessa þjálfun og henni á að gefa forgang samkvæmt opinberum gögnum. í hlutverkaleik æfast jafn- framt margir fleiri mikilvægir þættir máls, þar á meðal notkun máls sem sjálfstætt táknkerfi eins og rannsóknir Snow (1983, 1991a, 1991b) sýna. Börnin virtust hafa gott tækifæri til að þjálfa þennan þátt því að hlutverkaleikur var eitt af því sem þau gátu valið sér og var oft á dagskrá. Margt í starfsemi leikskólanna stuðlaði að því að efla meðvitaða málkennd barnsins. Þessi staðreynd virtist vera starfsfólkinu eins og hulin. Meðvituð mál- kennd var sérstaklega æfð með markvissum æfingum og leikjum, mest af hljóðræn- um toga. Slík hljóðræn þjálfun er ein af mörgum nauðsynlegum leiðum til að þroska meðvitaða málkennd. Alhliða málnotkun felur engu að síður í sér margt fleira og má þar nefna frá- sagnir barnanna, lýsingar þeirra á ýmsu, málnotkun við mismunandi aðstæður, og það að tala málið rétt. Allir þessir þættir stuðla að auðugri málnotkun og glæða þar að auki meðvitaða málkennd (Clay 1991b, Hagtvet 1994, o.fl.). í starfi skólanna var meira og minna komið inn á þessa þætti í einhverju samhengi. Hins vegar var ekki gott að leggja mat á það í hve miklum mæli starfsfólki var þetta ljóst, því að svo virtist sem markvissri stefnu væri ekki fylgt um mál og málþjálfun. Hjá starfsfólki kom fram sjónarmið um það að móðurmál væri heild sem fælist í öllu sem var gert og að það yrði ekki skilið frá öðrum þroskaþáttum hjá barninu. í mínum huga útilokar slík túlkun ekki að jafnframt sé ákveðinni málstefnu fylgt. Skilyrði í leikskólunum til þess að þróa læsi voru margs konar. Auðvelt var að nálgast ritmál því að umgengni við gögn, s.s. bækur, blöð og spil af ýmsum gerðum þótti sjálfsögð. Áhrifaríkar leiðir voru notaðar til að vekja athygli barnanna á rit- málinu og hjálpa þeim að skilja tilgang þess, eins og þegar nöfn þeirra voru skrifuð á miða með myndum af þeim. Ríkulegt úrval bóka, sem var í báðum skólum, og lestur á sögum fyrir börnin á hverjum degi var hvort tveggja til þess fallið að ýta markvisst undir þróun læsis eins og staðfest er í mörgum rannsóknum (Clay 1991a, Teale og Sulzby 1989). Með þessum hætti var komið vel til móts við að minnsta kosti tvennt sem er afdrifaríkt í þessu sambandi. í fyrsta lagi laðaði umhverfið börn að ritmáli og í öðru lagi höfðu þau tök á því, hvert á sinn hátt, að uppgötva nota- gildi þess. Starfsemin studdi því vel við það sem ætlast er til í Uppeldisdætlun fyrir leikskóla, að í leikskólunum séu til vel valdar barnabækur vegna gildis þeirra í mál- örvun barna og vegna þess að þær gegna mikilvægu hlutverki í allri fræðslu (1993:56). Athyglisvert var að uppgötva hversu mörg elstu barnanna höfðu áhuga og voru tilbúin að glíma við ritmál. Þau léku sér að því að skrifa, þau langaði til að læra að þekkja bókstafi og þau tóku bækur og þóttust lesa eins og fullorðnir gera. Þar fyrir utan voru svo nokkur sem höfðu þessa færni á valdi sínu. Leikskóla- kennurum hefur lengi verið ljós þessi staðreynd í leikskólastarfinu. Fróðlegt var að 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.