Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 31

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 31
RANNVEIG A. JÓHANNSDÓTTIR til í Aðalnámskrá grunnskóla að kennari kynnist hverju einstöku barni og gefi því tækifæri til að tjá sig á margvíslegan hátt við ýmsar aðstæður (1989:24 og 67). í skólastarfinu var talmál þjálfað með ýmsum málörvunarleikjum til að efla meðvitaða málkennd. Kennslan mótaðist sterklega af því að vera jafnframt undir- búningur undir lestrarkennslu, hljóðrænir eiginleikar málsins voru einkum æfðir ásamt merkingu orða og setninga auk málfræði. Tengsl meðvitaðrar málkenndar við þróun lestrar eru viðurkennd af mörgum fræðimönnum og kennurum (Garton og Pratt 1989, Lundberg 1984, Tornéus 1986). Vitað er að hljóðræn vitund er afdrifa- rík á ákveðnu stigi í lestrarþróun og rímleikir, samstöfur og fleira eru áhrifaríkar aðferðir til þess að þroska hana. I skólastarfinu voru þessir þættir mikið á dagskrá og þjálfun af þessum toga í góðu samræmi við það sem ætlast er til í Aðalnámskrá grunnskóla, þegar talað er um að byrjendur þurfi „að glíma við æfingar þar sem athuguð er orðaröð, stafaröð, merking orða og ólík form þeirra" (1989:67). En enn ber að árétta að meðvituð málkennd felst í fleiru. Hún tekur til allra eiginleika máls- ins og þróast í margbreytilegri málnotkun á löngum tíma hjá barninu. A fyrstu skólaárunum tekur málþróunin miklum breytingum og það varðar miklu að barn fái örvun og stuðning í skólastarfinu sem hjálpar því að þjálfa málið sem sjálfstætt táknkerfi, en á því er allt formlegt nám talið byggjast. Brýnt er í starfi skólans að ýta undir þessa hæfni og skapa tækifæri þar sem barnið eflir frásagnar- gleði sína. í Aðalnámskrá grunnskóla kemur fram að strax í byrjun skólastarfsins eigi að leggja áherslu á margbreytilega tjáningu barnanna (1989:67). Niðurstöður þess- arar rannsóknar sýna að reynt var að koma til móts við þennan þátt í starfi beggja skólanna. Hins vegar var ekki vel ljóst hve markvisst var stuðlað að fjölbreytilegri málnotkun barnanna. í grunnskóla A var sérstök áhersla lögð á þennan þátt í skólastarfinu enda var hann liður í yfirlýstri stefnu skólans. Skapandi leikir, líkt og hlutverkaleikir, voru ekki áberandi í skólastarfinu. Þessi skortur í starfsemi skólans er umhugsunarverður, einkum með hliðsjón af þremur atriðum. í fyrsta lagi er mikilvægi skapandi leiks fyrir mál og þroska barns almennt viðurkennt. í öðru lagi sýnir víðtæk þekking og skilningur á þroska barna að þau eru virkir skapendur sem þurfa að fá útrás fyrir eigin sköpunarþörf. í þriðja lagi er skýrt fjallað um mikilvægi leiksins í Aðalnámskrá grunnskóla (1989:23) en þar segir: Þar sem leikurinn er hið eðlilega athafnaform barna við upphaf skólagöngu er æskilegt að vitsmunaproski sé örvaður eins og kostur er með leikjum á pessu aldursstigi. Skapandi leikur er auk margs annars mikilvægur þáttur í málþróun barna. Sá mun- ur er kemur í ljós á milli skólastiganna tveggja um gildi leiksins er verðugt við- fangsefni fyrir kennara í grunnskóla að skoða og meta með tilliti til skólastarfsins þar. Lestrarkennsla var mest ríkjandi þáttur í þjálfun móðurmáls. í báðum skólum var samtengjandi aðferð, hljóðaaðferð, kennd. Samhliða lestrarkennslunni voru í báðum skólum ýmis viðfangsefni sem tengdust þjálfun móðurmáls með einum eða öðrum hætti, s.s málörvunarleikir, söngur og margvíslegar þrautir. Kennarinn hafði einnig margs konar áhrif með ýmsu sem hann gerði þegar hann kenndi bókstafina. I báðum skólum voru munnlegar og skriflegar æfingar til þess að þjálfa lestrar- 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.