Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Síða 44

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Síða 44
LEIKSKÓLI FYRIR ALLA? gátan var sú að fagfólk, sem hefði tilhneigingu til að hafa atriði úr fyrsta flokki í fyrirrúmi, væri líklegt til að flokka atriði úr öðrum flokki léttvæg. Vonir stóðu til þess að þannig yrði unnt að greina á milli ólíkra faglegra áherslna. Loks, í þriðja flokk, var þeim atriðum skipað, sem ekki tengjast því hvernig tekst að vinna mark- visst að sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra.14 Svara átti hverju þessara ell- efu atriða á sex punkta kvarða. í spurningu þrjú voru þátttakendur annars vegar spurðir hvort þeir hefðu reynslu af starfi með fötluðum börnum og hins vegar hvort þeir hefðu lært eitthvað í námi sínu sem tengdist uppeldi eða þjálfun fatlaðra. í báðum tilvikum voru svar- kostir tveir, já og nei. í spurningu fjögur var spurt hversu vel þátttakendur teldu sig undir það búna að vinna með fötluðum börnum, og voru svarkostir fimm, frá mjög vel til mjög illa. í spurningu fimm voru þátttakendur spurðir hvar þeir teldu þörfum fatlaðra leikskólabarna best mætt í þjónustukerfinu: Á sérstökum stofnunum fyrir fatlaða; á sérdeildum tengdum almennum leikskólum; á almennum leikskólum; eða annað fyrirkomulag. Spurning sex var sú hvort þátttakendur væru ánægðir með hvernig leikskólinn, sem þeir störfuðu á, væri undir það búinn að sinna sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna. Þar voru svarkostir já og nei. Framkvæmd könnunarinnar var sú að listunum var komið til leikskólastjóra að fengnu leyfi þeirra. Allir leikskólastjórar nema einn veittu fúslega leyfi fyrir könn- uninni 1986. Enginn leikskólastjóri baðst undan þessu í síðara skiptið. Leikskóla- stjórarnir sáu um að koma listunum ásamt umslögum í hendur starfsfólks og safna þeim útfylltum í þar til gerða lokaða kassa. Listarnir voru sóttir fáeinum dögum síðar. Með þessum hætti tókst að safna saman flestum listunum, en nokkrir þeirra bárust í pósti. Úrvinnsla og greining Svör við spurningum eitt og tvö voru flokkuð í þrennt samkvæmt Likert-kvarða þar sem þrír táknaði „skiptir miklu máli", einn táknaði „skiptir litlu máli" og miðj- an, tveir, var skilgreind sem hlutleysi. Fjölbreytudreifigreining (ANOVA) var notuð til að bera saman svör milli kannana, eftir aldri og milli leikskólakennara og ófaglærðra. í spurningu tvö var einnig notuð Spearman-rho fylgni til að athuga hvort tengsl væru milli meðaltala svara við atriðum á listunum hjá leikskóla- kennurum og ófaglærðum. í spurningu þrjú var hlutfall þeirra sem svöruðu játandi og neitandi borið sam- an milli kannana eftir menntunarhópum. í spurningu fjögur voru svör flokkuð í þrennt, þannig að þeir sem svöruðu „mjög vel" eða „fremur vel" töldust hafa svar- 14 Flokkur þrjú. Þetta eru óskir um meiri faglegan stuðning við störf á leikskólum (h, og j), atriði sem virtist einkenna umfjöllun og íhugun leikskólakennara um uppeldisstarfið, börnin og eigið framlag (g, „það að hafa yfirsýn ...") og loks atriði af líkum meiði sem varðar stjórn eða ofstjórn fullorðinna á barnahópnum. Þetta síðasta atriði gat líka verið rök fyrir eða útskýring á „smá hléum" starfsfólks (f, „að tryggja ... börnum vinnu- frið..."). Öll þessi atriði varða mikilvæga þætti í starfi á leikskólum og vöktu athygli í dagheimilisrannsókninni 1985, en voru sett hér inn sem hlutlaus flokkur. 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.